Skoðun

Ríkisstyrktar misþyrmingar

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Á síðustu vikum hafa bandarísk yfirvöld aðskilið rúmlega 2.300 börn frá foreldrum sínum og fangelsað. Þessar fjölskyldur héldu yfir landamærin í leit að framtíð í landi tækifæranna. Landi sem byggt var á grunni hinnar einu sönnu mannlegu viðleitni; leitarinnar að öryggi, framtíð og friði. Landi sem lengi vel minntist uppruna síns, þar sem frelsisgyðjan Libertis sagði við hinn gamla, fáfróða heim að í framtíðarlandinu væru hinir uppgefnu, þreyttu og frelsisþyrstu velkomnir.

Þetta göfuga viðhorf var framan af leiðarstef leiðtoga á heimssviðinu. En um leið er boðskapurinn djúpstæður og mikilvægur vitnisburður um uppruna allra þjóða og samfélaga frá örófi alda – þau eiga uppruna sinn og menningu að rekja til fólksflutninga, blöndunar mismunandi hópa og sífelldrar innleiðingar nýrra hugmynda, gilda og viðmiða.

Villimennskan sem bandarísk yfirvöld hafa sýnt í garð þeirra sem þangað leita í von um öruggt athvarf er viðurstyggileg, en þó ekki óvænt miðað við það sem Bandaríkjaforseti lofaði í kosningabaráttu sinni. Forsetinn og handbendi hans vísa í lög máli sínu til stuðnings, en allir sjá að óþarfi er að beita þeim með þessum hætti. Forsetinn kennir minnihluta Demókrata á Bandaríkjaþingi um stöðuna, sem er auðvitað fásinna. Að mati bandarískra yfirvalda glatar einstaklingurinn mannréttindum sínum þegar hann kemur til landsins án vegabréfsáritunar. Og nú er svo komið að börn eru geymd í hundraðatali bak við lás og slá, fjarri foreldrum sínum.

En þessi þjóðernisrembingur einskorðast auðvitað ekki við Bandaríkin. Við höfum séð slíkt spretta fram víða um heim á undanförnum árum, þar á meðal í Evrópu. Oft eru þetta leiðtogar sem hafa tilhneigingu til að dást að einveldistilburðum, líkt og í tilfelli Bandaríkjaforseta sem opinberlega hefur lýst aðdáun sinni á kollegum sínum í Rússlandi og Norður-Kóreu.

Það ætti að vera markmið okkar sem vitum betur, okkar einstaklinganna og þeirra sem við höfum valið til að tala fyrir okkar hönd, að mótmæla þjóðrembingi og þeim hörmungum sem hljótast af honum. Þessari meinsemd verður að mæta með andófi, og leiðtogar okkar eru meðsekir þeim, sem hirða ekki um mannlega reisn og þverbrjóta á mannréttindum þeirra sem minna mega sín, láti þeir ekki í sér heyra. Sem aðili að Atlantshafsbandalaginu og Sameinuðu þjóðunum eigum við að láta í okkur heyra, ekki bara til að mótmæla mannfyrirlitningunni í Bandaríkjunum, heldur einnig til að segja hingað og ekki lengra við þá sem telja landamærin æðri mannskepnunni.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×