Hrútskýringar Framsóknarmanna um HSS í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir og Guðrún Ösp Theodórsdóttir skrifar 25. maí 2018 10:00 Í ljósi aðsendrar greinar í Víkurfréttum í Reykjanesbæ fundum við frambjóðendur Samfylkingarinnar okkur knúnar að svara fullyrðingum sem þar voru settar fram af oddvita Framsóknarflokksins. Ljóst er að greininni er ætlað að upphefja fyrirætlanir umrædds flokks í heilbrigðismálum nú rétt fyrir sveitastjórnakosningarnar auk þess að kasta rýrð á Guðnýju Birnu hjúkrunarfræðing við HSS og bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.Hver er vandinn? Aðalvandamál HSS er skortur á læknum og hjúkrunarfræðingum, eins og á flestum heilbrigðisstofnunum landsins. Að sjálfsögðu erum við ekki að halda því fram að núverandi ástand heilsugæslunnar sé gott og höfum aldrei gert. Þjónustan á heilsugæslunni okkar þarf að vera betri. Íbúar bíða lengi eftir tímum hjá læknum, fara oftar á síðdegisvaktina og fylla slysa- og bráðamóttökuna til að komast til læknis eða hjúkrunarfræðings samdægurs. Hvað varðar ætlaðar rangfærslur Guðnýjar Birnu um greinarmun á sjúkrahúsþjónustu og heilsugæslu skal það tekið sérstaklega fram að slysa- og bráðamóttaka HSS tilheyrir heilsugæslunni, ekki sjúkrahússviðinu. Hvað varðar að koma ekki inn á skýrslu Landlæknis skal það tekið fram að Guðný Birna skrifaði greinina „Engin spurning að öryggi sjúklinga er ógnað“ þar sem hún skrifar sérstaklega um úttekt landlæknis á HSS.Við höfum reynt að fá samfélagið með okkur í lið til að knýja fram breytingar og fá aukinn skilning á stöðu stofnunarinnar til lengri tíma. Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fékk Aton ráðgjöf til að bera saman fjárframlög til stofnunarinnar miðað við aðrar stofnanir á landinu. Meistararannsókn Guðnýjar Birnu, sem kemur út síðar í sumar, bar saman fjármagn ríkisins annars vegar til Reykjanesbæjar og hins vegar til Akureyrar þar sem HSS er sérstaklega tekin fyrir. Báðar skýrslurnar leiða berlega í ljós mismunun í fjárframlögum ríkisins.Óskýr stefna Framsóknar Við veltum fyrir okkur hvað Framsóknarmenn eiga við með breytingum á stjórnunarfyrirkomulagi á HSS með aðkomu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar án fjárútláta. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er stofnun sem rekur heilsugæslu og sjúkrahús saman. Ýmsar stoðdeildir eru samnýttar svo sem rannsóknarstofa og myndgreining. Fjöldi fagfólks starfar á HSS og sinnir skjólstæðingum stofnunarinnar í heild. Starfsfólkið þar hefur staðið sig frábærlega á erfiðum tímum, verið í fararbroddi með nýjungar í þjónustu og býður upp á framúrskarandi sykursýkismóttöku og hjúkrunarmóttöku. Ætla Framsóknarmenn að rifta samstarfinu sem ríkir á stofnuninni? Við heyrum bara talað um of langa bið og of fáa lækna, ætla Framsóknarmenn að vera bara með lækna á nýju heilsugæslunni? Mun engin hjúkrun eiga sér stað? Gera þeir sér grein fyrir að í raun sýna hjúkrunarfræðingar og fagfólk í stoðþjónustu mesta tryggð við stofnunina? Ætla þeir að reka rannsóknarstofu? Verða þeir með röntgendeild? Sólarhringsþjónustu? Hvar ná þeir í lækna og hjúkrunarfræðinga inn í reksturinn þar sem landlæg mannekla er í þessum stéttum á Íslandi? HSS þjónustar stærra svæði en Reykjanesbæ, ætla Framsóknarmenn að gera samning við að sinna íbúum Sandgerðis, Garðs, Grindavíkur og Voga eða ætla þeir einungis að sinna Reykjanesbæ?Hagnaður í heilsubresti?Íslenska ríkið greiðir 25.000 krónur með hverjum sjúklingi sem leitar sér heilbrigðisþjónustu. Ekki er ljóst né skilgreint hver borgi kostnað umfram það. Að öllum líkindum lendir sá kostnaður á ríkisstofnunum, ekki á einkareknu stofunum. Að leggja megináherslu á að einkavæðing heilsugæslu skili hagnaði vekur mann til umhugsunar. Af hverju ættum við að hagnast á veikindum annarra? Ætlum við að breyta heilsugæslum Íslands eingöngu til þess að græða á þeim? Ætlum við í kjölfarið að gera heilbrigðiskerfið okkar hagnaðardrifið líkt og í Bandaríkjunum þvert á fyrirætlanir heilbrigðisráðherra? Óljóst er hvernig Framsóknarmenn ætla að yfirtaka heilsugæslu HSS. Skýr samskipti og vandlegur undirbúningur er lykilatriði þegar unnið er með líf einstaklinga. Það er hættulegt að mæta óundirbúinn í útkall og sýna fljótfærni, við hjúkrunarfræðingarnir vitum það. Við búum báðar yfir áratuga reynslu sem hjúkrunarfræðingar á HSS. Við erum búnar að vera að berjast fyrir bættri þjónustu HSS lengur en í mánuð eins og sjá má af ítrekuðum greinaskrifum okkar í gegnum árin og erum hvergi nærri hættar. Það er annað en Framsóknarmenn sem byrja fyrst að tala um HSS korter í kosningar og níða skóinn af okkur sem höfum barist fyrir tilvist og eflingu HSS í meira en áratug. Íbúar Reykjanesbæjar eiga annað og betra skilið. Guðný Birna Guðmundsdóttir, MSc í heilbrigðisvísindum og MPA í opinberri stjórnsýslu. Guðrún Ösp Theodórsdóttir, MSc í bráðahjúkrun. Höfundar skipa 2. og 5. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Eflum heilsugæsluna og HSS frá 2014 eftir Guðnýju Birnu - https://www.vf.is/adsent/eflum-heilsugaesluna-og-hss/62125Besta heilbrigðiskerfi í heimi? Frá 2016 eftir Guðnýju Birnu - https://www.vf.is/vikurfrettir-i-30-ar/besta-heilbrigdiskerfi-i-heimi/71677Eiga Suðurnesjamenn ekki rétt á sömu heilbrigðisþjónustu og aðrir? Frá 2017 eftir Guðnýju Birnu - http://www.vf.is/frettir/eiga-sudurnesjamenn-ekki-rett-a-somu-heilbrigdisthjonustu-og-adrir/76931 Staða heilbrigðis á Suðurnesjum frá 2017 eftir Guðnýju Birnu - https://www.vf.is/adsent/stada-/81148Suðurnesjamenning frá 2010 eftir Guðrúnu Ösp - https://www.vf.is/adsent/-sudurnesjamenning/45302Heilsu og öryggi Suðurnesjamanna ógnað frá 2010 eftir Guðrúnu Ösp - https://www.vf.is/adsent/heilsu-og-oryggi-sudurnesjamanna-ognad/43130Ályktun frá hjúkrunarráði HSS frá 2012 eftir Guðrúnu Ösp - https://www.vf.is/adsent/alyktun-fra-hjukrunarradi-hss/54392Opið bréf til Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra frá 2012 eftir Guðrúnu Ösp - http://www.vf.is/frettir/opid-bref-til-gudbjarts-hannessonar-velferdarradherra/54316 Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kosningar 2018 Mest lesið Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson Skoðun Halldór 5.10.2024 Jón Þór Stefánsson Halldór Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson Skoðun Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum Valdimar Víðisson Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir Skoðun Veistu þitt skýjaspor? Hólmfríður Rut Einarsdóttir,Þóra Rut Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar Skoðun Framtíðarkvíði er ekki gott veganesti Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Orkan á Vestfjörðum Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Smábátar eru þjóðhagslega hagkvæmari en togarar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Vísindin vakna til nýsköpunar! Einar Mäntylä skrifar Skoðun Risastórt lýðheilsumál sem Alþingi hunsar Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar Skoðun Þess vegna býð ég mig fram Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Einstakur atburður og viðbúnaður Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Framboð er eina leiðin Eiríkur St. Eiríksson skrifar Skoðun Háskóli Íslands er ekki að sinna skyldum sínum Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Verðmætasköpun og kennarar Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Nýjar lausnir gegn ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Lögin um það sem er bannað Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir skrifar Skoðun Dauðarefsing Pírata Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Af hverju erum við að þessu? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða í boði orkugeirans og Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Úrskurðargrautur lögmanna Ómar R. Valdimarsson skrifar Skoðun Er vitlaust gefið í stjórnmálum? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Hinn langi USArmur Ísraels Ingólfur Steinsson skrifar Skoðun Kveðja frá Heimssýn til landsfundar VG 2024 Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðaróperan á Alþingi í nær 70 ár Finnur Bjarnason,Þórunn Sigurðardóttir skrifar Skoðun Um Ölfusárbrú og veggjöld Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun