Skoðun

Hvað er listmeðferð?

Eva Eðvarðsdóttir skrifar
Grein þessi varðar notkun á hugtakinu „Listmeðferð og músíkmeðferð“.

Mikill er máttur listanna og það hafa menn vitað frá örófi alda. Listir hafa verið notaðar í margs konar tilgangi í fagurlistum, arkitektúr, hönnun, kennslu, til tjáningar, styrkingar og gleði. Að gefnu tilefni er þörf á að skerpa á notkun hugtaksins „meðferð“ frá sjónarhóli list- og músíkmeðferðarfræðinga, ekki síst m.t.t. öryggis og virðingu fyrir sjúklingum og skjólstæðingum.

Félag músíkmeðferðarfræðinga (stofnað 1997) og Félag listmeðferðarfræðinga (stofnað 1998) eru fagfélög einstaklinga hér á landi sem hafa menntað sig sem músík- eða listmeðferðarfræðinga (Music Therapist/Art Therapist). List- og músíkmeðferðarfræðingar hafa lokið meistaragráðu eða sambærilegri menntun frá viðurkenndum skólum á þessu sviði. Menntunin er á háskólastigi og samanstendur hún af kenningum um listsköpun, sálfræðikenningum, geðfræði, reynslu af listsköpun og starfsþjálfun undir handleiðslu reynds listmeðferðarfræðings, sálfræðings eða geðlæknis. Á meðan á námi stendur er lögð áhersla á að nemendur sæki sér persónulega meðferð. Menntun í list og músíkmeðferð er ekki í boði á Íslandi sem stendur.

Inga Björk Ingadóttir músíkmeðferðarfræðingur.
Síðan um aldamót hafa fagfélögin tvö óskað eftir löggildingu. Félagsmenn vinna með viðkvæma einstaklinga, oft í flókinni tilfinningavinnu. Það krefst þess að viðkomandi hafi þekkingu á listforminu, eigin tilfinningalífi, meðferðarsambandinu, meðferðarkenningum og kunni að beita listrænni tjáningu sem verkfæri til að meðferðin gagnist einstaklingnum. Löggilding faggreinanna er mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi sjúklinga. Með þessu má koma í veg fyrir að þeir sem ekki hafa lokið námi í viðeigandi meðferðarfræðum valdi skaða vegna vanþekkingar sinnar.

Í haust verður norræn ráðstefna haldin á Hótel Örk í Hveragerði þar sem menntaðir meðferðafræðingar í skapandi listum flytja erindi og halda vinnustofur. Ein af frumkvöðlum listmeðferðar og stofnendum þessarar ráðstefnu er Sigríður Björnsdóttir sem lengi starfaði á barnadeild Landspítalans. Fyrsta ráðstefnan var haldin á Íslandi árið 1975 en hefur síðan verið haldin annað hvert ár í hverju Norðurlandanna. Frá 2014 hefur ráðstefnan verið haldin í samvinnu við músíkmeðferðarfræðinga og leiklistarmeðferðarfræðinga og verður það gert að þessu sinni líka. Fyrirlesarar og þeir sem halda vinnustofur koma frá ýmsum löndum og er leitast við að fjalla um það sem efst er á baugi í meðferðarfræðunum á hverjum tíma. Þessi ráðstefna er öllum opin og getur gefið áhugasömum góða innsýn í meðferðarform skapandi lista. Hægt er að hafa samband við félög list- eða músíkmeðferðarfræðinga til að fá frekari upplýsingar. Upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á ncatc2018.is.

Fyrir hönd stjórna

Félags listmeðferðarfræðinga (listmedferdisland.com) og Félags músíkmeðferðarfræðinga




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×