Fótbolti

Ronaldo mun spila úrslitaleikinn gegn Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo eftir að hann meiddist um helgina.
Ronaldo eftir að hann meiddist um helgina. vísir/getty
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, staðfesti í dag að Cristiano Ronaldo verði orðinn klár í slaginn er úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram.

Ronaldo meiddist í leiknum gegn Barcelona um nýliðna h elgi og fór þá eðlilega um stuðningsmenn Real.Úrslitaleikurinn gegn Liverpool fer fram þann 26. maí.

„Það verða allir klárir í lok maí. Ronaldo, Isco og Dani Carvajal,“ sagði Zidane en þessir þrír eru tæpastir fyrir leikinn.

„Meiðsli Cristiano eru verst þar sem hann var að meiðast en hann verður í lagi. Isco er að æfa með okkur og það er stutt í að Carvajal mæti á æfingar.“

Ronaldo skoraði fyrir Real gegn Barcelona en varð að fara af velli í hálfleik vegna meiðslanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×