Lífið

Unnsteinn og Ágústa selja endurnýjaða íbúð í miðborginni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Unnsteinn og Ágústa færa sig um set.
Unnsteinn og Ágústa færa sig um set. myndvinnsla/hjalti
Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel Stefánsson og Ágústa Sveinsdóttir hafa sett glæsilega íbúð sína við Njálsgötu á söluskrá.

Um er að ræða bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á besta stað í Reykjavík.

Eignin var nýlega endurnýjuð að stórum hluta. Ásett verð er 36,9 milljónir en eignin er rúmlega sjötíu fermetrar að stærð. Íbúðin er virkilega snyrtileg og hefur parið komið sér einstaklega vel fyrir í miðborginni.

Hér að neðan má sjá myndir innan úr íbúð Unnsteins og Ágústu:

 

Krúttlegt og fallegt eldhús.
Skemmtileg borðstofa.
Björt og falleg setustofa á Njálsgötunni.
Snyrtilegt svefnherbergi.
Hér má sjá húsið sjálft.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.