Skoðun

Þunglyndi ungmenna

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Eins og Fréttablaðið greinir frá í dag þá hefur orðið tæplega nítján prósenta aukning í ávísunum þunglyndislyfja á Íslandi á árunum 2012 til 2016. Einna helst hefur aukning átt sér stað í ávísunum þunglyndislyfja til kvenna, þá sérstaklega ungra kvenna utan höfuðborgarsvæðisins. Við berum, sem fyrr, höfuð og herðar yfir þær þjóðir sem við viljum bera okkur saman við þegar notkun þessara lyfja er annars vegar. Við notum fjórðungi fleiri dagskammta á hverja eitt þúsund íbúa en sú Norðurlandaþjóð sem á eftir okkur kemur.

Auðvitað er það áhyggjuefni hversu mikil aukning hefur orðið í ávísun þunglyndislyfja, einkum og sér í lagi þegar horft er til unga fólksins. En þessar ávísanir eru eðlilegt viðbragð við ömurlegri stöðu í geðheilbrigðismálum. Og ljósið í myrkrinu er það að hér er stór hópur fólks sem leitað hefur sér aðstoðar við erfiðleikum sínum.

Þunglyndislyf, eða geðdeyfðarlyf, virka. Virkni þeirra hefur í gegnum tíðina verið umdeild en nýlegar rannsóknir á þessari virkni renna styrkum stoðum undir það að lyfin hjálpi og bæti lífsgæði einstaklinga með þunglyndi og aðra tengda sjúkdóma.

Á heimsvísu er þunglyndi helsta orsök örorku en samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunar þjást um 300 milljónir manna af þunglyndi, fyrst og fremst konur, ungt fólk og aldraðir.

Staða ungs fólks er sérstaklega viðkvæm og það ætti að vera algjört forgangsatriði að ná til ungmenna sem ýmist glíma við þunglyndi eða eru útsett fyrir þunglyndi út frá félagslegum þáttum og öðru. Einkenni þunglyndis eru algeng í þessum aldurshópi og eru beintengd andlegum erfiðleikum til lengri tíma sem um leið hafa neikvæð áhrif á menntun og félagslega stöðu.

Það eru sterkar vísbendingar um að inngrip geti borið árangur. Þegar stór hópur 14 ára unglinga í Bretlandi sem glímdu við þunglyndi var tekinn í reglubundna geðheilbrigðisathugun var niðurstaðan eðlilega sú að stór hópur þeirra náði gríðarlegum árangri.

Geðheilbrigðisáætlun til ársins 2020 er mikið gleðiefni, en það er nauðsynlegt að efla geðrækt í skólum landsins. Rétt eins og við hvetjum börnin okkar til að leggja hart að sér í stærðfræði, íslensku og íþróttum þá verðum við að gefa þeim tækifæri til að rækta sjálfa forsenduna fyrir því að þessir hæfileikar þeirra nýtist í framtíðinni, og það er ekki hægt nema hugurinn sé ræktaður á sama tíma og allt hitt.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×