Lífið

Fyrsta einkasýningin á 60 ára myndlistarferli

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ein myndanna á sýningunni í Hannesarholti.
Ein myndanna á sýningunni í Hannesarholti.
Hilmar Hafstein Svavarsson opnar sína fyrstu einkasýningu á myndverkum í veitingastofum Hannesarholts í dag, 5. apríl, klukkan 16. Hann er á áttræðisaldri en kveðst hafa fengist við myndlist frá barnsaldri. „Ekki kannski stöðugt en alltaf af og til.“ 

Elstu myndina á sýningunni segist hann hafa málað tólf ára gamall og önnur hafi verið í vinnslu í fimmtíu ár!

„Það er dálítið stórt skref að halda sýningu og það stóð ekki til af minni hálfu,“ segir Hilmar.



Nú verður ekki aftur snúið segir Hilmar um sýninguna. Fréttablaðið/Ernir
„En bæði langaði mig að skoða húsið Hannesarholt og líka vatnslitasýningu sem þar var þá, samt munaði engu að ég hætti við, mér gekk svo illa að finna bílastæði, svo gekk það upp og mér finnst að ég hafi verið leiddur á fund forstöðukonunnar í Hannesarholti, Ragnheiðar Jónsdóttur. Ég álpaðist til að segja henni að ég væri að dunda við að mála og þegar hún áttaði sig á að ég væri af Hafsteinsætt, eins og Hannes sem átti húsið, þá sagði hún: „Þú bara sýnir hjá mér, það er ekkert sem heitir.“ Ég var á báðum áttum en sló svo til, líka vegna þess að konan mín studdi mig í því. Hún er eflaust orðin leið á að hafa myndirnar inni í herbergi og geymslu!“

Hilmar kveðst hafa gefið sér góðan tíma í að undirbúa sýninguna. „Sumar myndir þurfti ég að lagfæra og aðrar að ramma inn. En svo mætti ég í Hannesarholt með 32 myndir síðasta mánudagsmorgun og eftir það varð ekki aftur snúið.“

Myndlistina hefur Hilmar stundað meðfram loftskeytastörfum á sjó og verslunarrekstri í landi og kveðst nota alls konar liti. „Ég var lengst af með olíuliti, svo fór ég á mörg námskeið í vatnslitun, var heppinn með kennara og er orðinn einna hrifnastur af vatnslitunum. Einnig er ég aðeins með akrýlliti og hef dundað við margs konar myndlist, lærði meira að segja húðflúr.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.