Lífið

Ullaði á gagnrýnanda með barnið sitt

Benedikt Bóas skrifar
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir var ósátt við gagnrýni Fréttablaðsins um leikverk hennar og ullaði framan í gagnrýnandann. Eitt sinn móðgaði John Lennon bresku þjóðina með sama háttalagi.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir var ósátt við gagnrýni Fréttablaðsins um leikverk hennar og ullaði framan í gagnrýnandann. Eitt sinn móðgaði John Lennon bresku þjóðina með sama háttalagi. Vísir/VIlhelm
„Ljósið í myrkrinu var að ég náði að ulla á konuna án þess að fimm ára sonur minn tæki eftir því,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, teiknari, tónlistarkona í FM Belfast og leikskáld, á Twitter-síðu sinni en hún á þar við Sigríði Jónsdóttur, leikhúsgagnrýnanda Fréttablaðsins.

Sigríður dæmdi verkið Lóaboratoríum og gaf því tvær stjörnur. Þetta var fyrsta verk Lóu sem sýnt var á sviði og bendir gagnrýnandi blaðsins á að leikskáld spretta sjaldnast fram fullsköpuð og að Lóa hefði þurft meiri stuðning í ferlinu.

„Allur efniviðurinn er til staðar þannig að úr verði hnyttin ádeila um líf samtímakvenna sem væri svo sannarlega velkomið og þarft um þessar mundir. En húsið stendur á veikum grunni og umgjörðin heldur ekki. Íslensk leikritun dafnar ekki fyrr en skapað er umhverfi þar sem ungir höfundar geta þrifist, lært og skapað með stuðningi frá fagfólki,“ segir meðal annars í dómi Sigríðar.

Sjá einnig: Gamansemi dugar ekki alltaf til

Lóa var greinilega ekki tilbúin að meðtaka dóminn og segir enn fremur á Twitter-síðu sinni að sér hafi fundist Sigríður hafa skitið yfir verkið. Reyndar virðist Lóa hafa verið óheppin með fólk sem hún hitti þennan dag. Hún bendir á að sama dag hafi hún hitt mann sem skuldar henni þriggja mánaða laun en sá hafi setti fyrirtæki sitt í gjaldþrot.

Þá hafi hún fengið póst frá lögfræðingi um að mögulega fái hún aðeins 30 prósent af launum sínum fyrir vinnuna á Airwaves-hátíðinni í fyrra. „En bara kannski,“ segir hún og bætir við að hún hafi sleppt því að ulla á kallinn sem skuldaði henni launin því hann hafi verið að leiða barn


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.