Skoðun

Erfðaefni Facebook

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Hneykslið í kringum óleyfileg kaup pólitískra málaliða hjá Cambridge Analytica á gögnum um fimmtíu milljónir Facebook-notenda, og beiting þessara gagna sem vopns í sálfræðihernaði gegn kjósendum í Bandaríkjunum og Bretlandi, er aðeins eitt dæmi af mörgum þar sem viðkvæmar upplýsingar um notendur hafa runnið úr greipum Facebook. Þetta tiltekna mál er enn ein staðfestingin á því að Facebook er ekki treystandi fyrir persónuupplýsingum notenda sinna.

Við höfum séð þetta allt áður, þó ekki með jafn umfangsmiklum og alvarlegum hætti, en næstu skref eru fyrirsjáanleg. Facebook mun lofa bót og betrun. Mögulega verða innleiddir nýir öryggisstaðlar til að þrengja enn frekar að gagnasöfnun. En eitt er þó víst. Facebook mun aldrei breytast.

Facebook er háð vexti. Án hans hefur þetta miðtaugakerfi internetsins engan tilgang. Það sem knýr þennan hrikalega vöxt áfram er ört vaxandi gagnaskrá fyrirtækisins þar sem gögn og persónuupplýsingar hundraða milljóna Facebook-notenda, og jafnvel þeirra sem ekki nota samfélagsmiðilinn, eru geymd og standa auglýsendum og öðrum til boða og hagnýtingar.

Ekkert fær breytt þessu erfðaefni Facebook. Samfélagsmiðillinn þjónar þeim eina tilgangi að afla tekna með söfnun upplýsinga. Hin mikla lygi Marks Zuckerberg er að halda því fram að markmið sé að skapa betri og tengdari heim.

Vonarglætu er að finna í nýrri og umfangsmikilli persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (General Data Protection Regulation, eða GDPR) sem mun gera notendum kleift að gera mun víðtækari kröfur um meðferð persónuupplýsinga sinna. Reglugerðin verður innleidd 25. maí næstkomandi.

Eins jákvæður áfangi og innleiðing GDPR er þá breytir reglugerðin engu um eðli Facebook. Þörf er á enn harðari aðgerðum ríkisins til að vernda þegna sína, til dæmis með því að stöðva útbreiðslu nafnlauss og andlýðræðislegs áróðurs.

Facebook er ekki á förum, enda svalar miðillinn lífsnauðsynlegri þörf okkar fyrir því að tengjast hvert öðru, skapa samfélög og móta sjálfsmynd okkar. Á sama tíma megum við ekki leyfa miðlinum að afskræma sýn okkar á veröldina og samfélag okkar í gróðafíkn sinni.

Þegar þessir þættir eru teknir saman, annars vegar raunveruleg og eðlileg þörf okkar fyrir að nota Facebook og hins vegar sú staðreynd að samfélagsmiðillinn ber ekki hag okkar fyrir brjósti, þá blasir við að yfirvöld og eftirlitsaðilar þurfa að skerast í leikinn.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×