Bale með tvö í fjarveru Ronaldo

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gareth Bale og félagar fagna öðru marki Bale.
Gareth Bale og félagar fagna öðru marki Bale. vísir/getty
Real Madrid kláraði Las Palmas nokkuð auðveldlega, 3-0, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Las Palmas reynir að minnka forksot Barcelona á toppnum.

Gareth Bale, sem er talinn vera til sölu hjá Real, kom þeim yfir á 26. mínútu en Cristiano Ronaldo var ekki með. Það nýtti Bale sér.

Karim Benzema kom svo Real í 2-0 af vítapunktinum á 39. mínútu og á 51. mínútu kom Bale Real í 3-0 með öðru markinu. Lokatölur 3-0, öruggt hjá Real.

Real er í þriðja sætinu þrettán stigum á eftir Barcelona sem er á toppnum og stigi á eftir Atletico Madrid í öðru sætinu. Las Palmas er í átjánda sætinu með 21 stig, sjö stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira