Southgate vill velja HM-hópinn snemma Anton Ingi Leifsson skrifar 29. mars 2018 12:30 Southgate á hliðarlínunni gegn Ítalíu en hann er kominn með nokkuð skýra mynd af hópnum sem fer á HM í sumar. vísir/afp
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, ætlar að velja snemma 23-manna hópinn sem fer á Heimsmeistaramótið í Rússlandi í sumar. England gerði 1-1 jafntefli við Ítalíu á þriðjudag í síðasta leiknum áður en Southgate velur HM-hópinn en hann hefur þangað til 14. maí að velja 35 manna hóp. Hann þarf svo að skera niður í 23 þann 4. júní. Southgate ætlar hins vegar að velja hópinn fyrir lokaátökin en England mætir Nígeríu 2. júní en Nígería er einmitt með Ísland í riðli á HM. Southgate ætlar að velja hópinn skömmu eftir að úrvalsdeildinni lýkur. „Ég myndi vilja velja hópinn fyrir næsta æfingarleik því þá færðu að vinna í frammistöðunni í leiknum en ekki leik þar sem menn reyna að sanna sig. Ég tel að það sé munur á þessu tvennu,” sagði Southgate. „Ef þú velur 28 manna hóp og þeir eru ekki vissir og samanborið við það að þú velur 23 manna hóp og fimm eru klárir ef eitthvað gerist - þá vita allir hvar þeir sita. Þessir fimm eiga möguleika en þeir koma og vita hvað er þeirra hlutverk.” „Ef þú hefur 28 eða 30 sem halda að þeir eigi möguleika þá gæti verið kvíði og óvissa í leikjunum. Fyrir mína parta, þá er betra að velja 23 og vinna með þá,” sagði Southgate sem er á leiðinni á sitt fyrsta stórmót með England.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Markalaust á Villa Park Enski boltinn Varafyrirliði Real Madrid sleit krossband Fótbolti Leik lokið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram Íslenski boltinn Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Enski boltinn Uppgjörið: ÍA - FH 4-1 | Skagamenn blanda sér í baráttuna um þriðja sætið Íslenski boltinn Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron Körfubolti Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Enski boltinn Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Golf Fyrirliði Íslandsmeistaranna hætt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Forest fékk stig manni færri Í beinni: Brighton - Tottenham | Sjálfstraust í Spurs Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Sjá meira