Dinkins skaut Skallagrím í kaf Anton Ingi Leifsson skrifar 18. mars 2018 21:26 Dinkins var mögnuð í leiknum. vísir/andri marinó
Skallagrímur varð af mikilvægum stigum í baráttunni við Stjörnuna um síðasta sætið í úrslitakeppninni í Dominos-deild kvenna er liðið tapaði fyrir Keflavík, 86-82, í Borgarnesi í dag. Skallagrímur var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Leiddi 20-17 eftir fyrsta leikhlutann og svo í hálfleik voru Borgnesingar 40-33 yfir en þær þurftu svo sannarlega á stigunum að halda. Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur spýttu hins vegar í lófana í síðari hálfleik. Þær unnu þriðja leikhlutann með sjö stiga mun og áttu frábæran fjórða leikhluta sem tryggði þeim fjögurra stiga sigur, 86-82. Brittanny Dinkins gerði sér lítið fyrir og skoraði 48 stig fyrir Keflavík auk þess að taka ellefu fráköst en næst kom Erna Hákonardóttir með ellefu stig. Keflavík er í þriðja sætinu, með jafn mörg stig og Valur, sem er í öðru sætinu en Keflavík á eftir að spila við Hauka og Njarðvík áður en úrslitakeppnin hefst. Carmen Tyson-Thomas gerði 39 stig fyrir heimastúlkur en einnig tók hún ellefu fráköst. Jóhanna Björk Sveinsdóttir gerði 16 og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13. Skallagrímur er nú tveimur stigum á eftir Stjörnunni þegar tveir leikir eru eftir en liðin mætast innbyrðis í næsta leik. Það verður svakalegur leikur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira