Menning

Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík haldin í fimmta sinn

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Börnunum leiðist ekki á Barnakvikmyndhátíð í Reykjavík.
Börnunum leiðist ekki á Barnakvikmyndhátíð í Reykjavík.
Alþjóðleg barnakvikmynda­hátíð í Reykjavík hefst þann 5. apríl næstkomandi og verður þetta í fimmta sinn sem hátíðin er haldin. Eins og venjulega verður haldin glæsileg opnunarhátíð þar sem verður mikið um dýrðir – Villi vísindamaður og fleiri góðir gestir sjá um að halda uppi stuðinu þar.

Opnunarmynd hátíðarinnar í þetta sinn er norska barnamyndin Doktor Proktor og tímabaðkarið. Myndin er byggð á barnabók eftir Jo Nesbø.

Verndari hátíðarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir.

Hátíðin verður þó ekki bara bíó – boðið verður upp á námskeið fyrir krakka, algjörlega ókeypis. Um er að ræða í fyrsta lagi námskeið í sketsaskrifum fyrir 13 til 15 ára krakka en það er Dóra Jóhannsdóttir leikkona, leikstjóri og handritshöfundur sem mun kenna.

Þar verður farið yfir grundvallaratriði í sketsaskrifum auk þess að horfa á sketsa og fleira. Námskeiðið fer fram laugardaginn 7. apríl klukkan 13 í Bíói Paradís. Í öðru lagi er það leiklistarnámskeið kennt af Ólafi S. K. Þorvaldz, leikara og leiklistarkennara. Námskeiðið fer fram í Bíói Paradís laugardaginn 14. apríl klukkan 12. Á bæði námskeið þarf að skrá sig á netfanginu marta@bioparadis.is og er skráning hafin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.