Innlent

Segjast ekki hafa verið með skipulagðar ferðir í íshellinn á Hofsjökli

Birgir Olgeirsson skrifar
Íshellirinn sem um ræðir er 150 metra djúpur. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Íshellirinn sem um ræðir er 150 metra djúpur. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty

Ferðaþjónustufyrirtækið Artic Trucks Experience segist ekki hafa staðið fyrir skipulagðra ferð í íshellinn á Hofsjökli. Starfsmaður fyrirtækisins fannst látin í hellinum síðastliðið miðvikudagskvöld.



Starfsmaðurinn, Ingi Már Aldan, hafði farið að íshellinum með ferðamönnum. Artic Trucks segist hafa fengið fyrirspurn frá fjölmiðlum um það hvort fyrirtækið hafi staðið fyrir skipulögðum ferðum að íshellinum.



„Svo er ekki. Í umræddu tilviki var um þriggja daga ferð um hálendið að ræða þar sem gist var á Hveravöllum og síðan í Kerlingarfjöllum. Eins og fram hefur komið í upplýsingum frá lögreglu ákváðu Ingi Már og samferðafólk hans breyta ferðaáætlun sinni og slást í för með öðrum hópum sem voru á leiðinni til að skoða íshellinn. Arctic Trucks Experience þekkir ekki ástæður þeirrar ákvörðunar en telur þó er rétt að benda á að á ferðum um hálendið á þessum tíma árs er talið að aukið öryggi felist í því að ferðast í samfloti við aðra,“ segir í tilkynningu frá Artic Trucks sem má lesa í heild hér fyrir neðan:

Í framhaldi fréttaflutnings af slysi í íshelli í Hofsjökli

Síðastliðið miðvikudagskvöld bárust Arctic Trucks Experience þær erfiðu fréttir að Ingi Már Aldan Grétarsson leiðsögumaður hefði ekki komið til baka út úr íshelli á Hofsjökli og að hafin væri leit að honum. Eins og fram hefur komið fannst Ingi Már látinn síðar um kvöldið. Um leið og Arctic Trucks Experience bárust fréttir af aðstæðum fóru fulltrúar fyrirtækisins upp að Kerlingarfjöllum til að sækja ferðamennina sem voru í för með Inga Má og var þeim boðin áfallahjálp og frekari aðstoð til að takast við þá erfiðu lífsreynslu sem þau höfðu orðið fyrir.



Ingi Már hefur á undanförnum árum tekið að sér leiðsögn við góðan orðstír í fjölda ferða sem Arctic Trucks Experience hafa skipulagt. Á miðvikudaginn var hann í ferð á vegum Arctic Trucks Experience með erlendum hjónum sem áður höfðu notið leiðsagnar hans í fyrri heimsókn sinni til Íslands og höfðu óskað sérstaklega eftir hans leiðsögn á ný enda frábær leiðsögumaður og reyndur jeppamaður.



Starfsfólk Arctic Trucks Experience vottar fjölskyldu og öðrum aðstandendum Inga Más sína dýpstu samúð vegna þess mikla missis sem þau hafa orðið fyrir. Þá vill fyrirtækið koma á framfæri þökkum til til lögreglu, björgunarsveita, Landhelgisgæslunnar og annara sem komið hafa að málinu.



Arctic Trucks Experience hefur fengið fyrirspurnir frá fjölmiðlum um það hvort fyrirtækið hafið staðið fyrir skipulögðum ferðum að íshellinum. Svo er ekki. Í umræddu tilviki var um þriggja daga ferð um hálendið að ræða þar sem gist var á Hveravöllum og síðan í Kerlingarfjöllum. Eins og fram hefur komið í upplýsingum frá lögreglu ákváðu Ingi Már og samferðafólk hans breyta ferðaáætlun sinni og slást í för með öðrum hópum sem voru á leiðinni til að skoða íshellinn. Arctic Trucks Experience þekkir ekki ástæður þeirrar ákvörðunar en telur þó er rétt að benda á að á ferðum um hálendið á þessum tíma árs er talið að aukið öryggi felist í því að ferðast í samfloti við aðra.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×