Taconic kominn með 46 prósent í Kaupþingi Hörður Ægisson skrifar 21. febrúar 2018 05:37 Sá sem stýrir félaginu sem heldur utan um hlut Taconic Capital í Arion banka er Frank Brosens, stofnandi og eigandi bandaríska vogunarsjóðsins.
Bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital, sem á 9,99 prósenta hlut í Arion banka, bætti talsvert við eignarhlut sinn í Kaupþingi í fyrra – fór úr 38 prósentum í tæplega 46 prósent – en sjóðurinn er sem fyrr langsamlega stærsti hluthafi eignarhaldsfélagsins. Heildareignir Kaupþings námu um 230 milljörðum í lok þriðja ársfjórðungs 2017 en þar munaði mest um 57 prósenta eignarhlut félagsins í Arion banka sem var þá metinn á liðlega 98 milljarða. Á sama tíma og Taconic Capital jók við hlut sinn í Kaupþingi þáminnkaði nokkuð eignarhlutur Attestor Capital og Och-Ziff Capital, sem stóðu einnig að kaupum í Arion banka í fyrra, í félaginu á síðasta ári. Samkvæmt lista yfir alla hluthafa Kaupþings í janúar síðastliðnum var Och-Ziff með 9,9 prósenta hlut á meðan Attestor átti um 5,5 prósent í félaginu. Í árslok 2016 nam samanlagður eignarhlutur vogunarsjóðanna í Kaupþingi hins vegar um 24 prósentum.Sjá einnig: Eigandi Taconic Capital segir kaupin á Arion ekki skammtímafjárfestingu Taconic Capital hefur á aðeins tveimur árum þrefaldað hlut sinn í Kaupþingi með uppkaupum á bréfum annarra hluthafa, en sjóðurinn keypti meðal annars sex prósenta hlut Seðlabanka Íslands fyrir um nítján milljarða í árslok 2016. Vogunarsjóðurinn var metinn hæfur af Fjármálaeftirlitinu til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka í september á liðnu ári en beint og óbeint eignarhald hans, sem stærsti hluthafi Kaupþings, í bankanum nemur í dag um 36 prósentum. Vogunarsjóðirnir þrír – Taconic, Attestor og Och-Ziff – ásamt bandaríska fjárfestingabankanum Goldman Sachs keyptu tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka fyrir um 49 milljarða króna í mars á síðasta ári. Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital bætti við sig 0,44 prósenta hlut í bankanum í september sama ár þegar hann nýtti sér kauprétt á genginu 0,85 miðað við eigið fé Arion banka samkvæmt árshlutareikningi í lok júní 2017.Fjárfestarnir eru allir á meðal stærstu hluthafa Kaupþings en eignarhlutur Goldman Sachs í félaginu nemur í dag um 2,9 prósentum og minnkaði um helming milli ára. Greint var frá því í síðustu viku að fjárfestingabankinn og Attestor hefðu keypt samtals 2,8 prósenta hlut til viðbótar í Arion banka af Kaupþingi. Í krafti eignarhlutar síns í Kaupþingi hefur Taconic Capital haft afar mikil ítök innan félagsins og þá um leið í söluferli Arion banka en áætlað er að útboð og í kjölfarið skráning bankans verði í lok apríl. Til marks um þau áhrif sjóðsins þá voru þeir Paul Copley, núverandi stjórnarmaður og forstjóri, og John P. Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, fengnir til liðs við félagið í ársbyrjun 2016 fyrir tilstuðlan Keiths Magliana, en hann hefur stýrt umsvifum Taconic Capital hér á landi frá því að sjóðurinn keypti fyrst kröfur á Kaupþing 2012. Í kjölfarið var Madden kjörinn í stjórn Arion banka í september 2016 og er hann sá eini í stjórn bankans með bein tengsl við Kaupþing Sá sem stýrir félaginu sem heldur utan um hlut Taconic Capital í Arion banka – og hefur þar með allt ákvörðunarvald um fjárfestingar þess – er Frank Brosens, stofnandi og eigandi Taconic, en hann er jafnframt á meðal endanlegra eigenda að sjóðnum sem hefur keypt í bankanum. Spurður af hverju sjö milljarða dala vogunarsjóður væri að fjárfesta í viðskiptabanka á Íslandi, benti Brosens, í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu fyrir um ári, á sterka stöðu hagkerfisins og þann mikla viðsnúning sem hefði orðið á undanförnum árum„Þegar þú lítur á tölur um hagvöxt, mikinn viðskiptaafgang, ört vaxandi gjaldeyrisforða og litlar skuldir ríkisins þá er efnahagsstaða Íslands á pari við það sem best gerist í heiminum. Efnahagsumhverfið er því mjög gott og núna þegar Ísland er að brjótast út úr höftum virðist það ætla að vaxa jafnvel hraðar en við bjuggumst við.“ Hann væri því þeirrar skoðunar, með hliðsjón af styrkleika hagkerfisins, að gengi krónunnar myndi haldast sterkt og sjóðurinn vilji því fjárfesta í henni. Til marks um það er Taconic Capital hlutfallslega minnst varinn gagnvart gengissveiflum krónunnar í tengslum við kaup sjóðanna á hlut í Arion banka.
Birtist í Fréttablaðinu Salan á Arion banka Tengdar fréttir Eigandi Taconic Capital segir kaupin á Arion ekki skammtímafjárfestingu Frank Brosens, stofnandi og eigandi bandaríska vogunarsjóðsins Taconic Capital, fullyrðir að kaup sjóðsins á tæplega tíu prósenta hlut í Arion banka séu ekki hugsuð sem skammtímafjárfesting. 20. mars 2017 06:00 Vogunarsjóðir að gerast virkir eigendur að Arion banka Vogunarsjóðunum Taconic og Attestor verður heimilað að eiga beint og óbeint meira en tíu prósent í Arion banka. FME mun brátt ljúka hæfismati sínu. Kaupþing og stjórnvöld vinna að því að endurskoða ákvæði um forkaupsrétt. 13. september 2017 06:30 Taconic á 150 milljarða undir á Íslandi og vill gerast virkur eigandi að Arion Fjárfesting bandaríska vogunarsjóðsins Taconic Capital, sem leiddi þann hóp erlendra fjárfesta sem keypti í síðasta mánuði tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka, í kröfum á íslensk félög, ríkisskuldabréfum og hlutafé fyrirtækja, nemur í dag yfir 150 milljörðum króna 12. apríl 2017 07:00 Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína og samþykkir níutíu daga „hlé“ fyrir tugi ríkja Viðskipti erlent Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Viðskipti innlent Hafi ógnað öryggi flugsins en fær samt bætur Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Sjá meira
Eigandi Taconic Capital segir kaupin á Arion ekki skammtímafjárfestingu Frank Brosens, stofnandi og eigandi bandaríska vogunarsjóðsins Taconic Capital, fullyrðir að kaup sjóðsins á tæplega tíu prósenta hlut í Arion banka séu ekki hugsuð sem skammtímafjárfesting. 20. mars 2017 06:00
Vogunarsjóðir að gerast virkir eigendur að Arion banka Vogunarsjóðunum Taconic og Attestor verður heimilað að eiga beint og óbeint meira en tíu prósent í Arion banka. FME mun brátt ljúka hæfismati sínu. Kaupþing og stjórnvöld vinna að því að endurskoða ákvæði um forkaupsrétt. 13. september 2017 06:30
Taconic á 150 milljarða undir á Íslandi og vill gerast virkur eigandi að Arion Fjárfesting bandaríska vogunarsjóðsins Taconic Capital, sem leiddi þann hóp erlendra fjárfesta sem keypti í síðasta mánuði tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka, í kröfum á íslensk félög, ríkisskuldabréfum og hlutafé fyrirtækja, nemur í dag yfir 150 milljörðum króna 12. apríl 2017 07:00