Skoðun

Fíllinn í stofunni

Kristín Soffía Jónsdóttir skrifar
Það er ekki hægt að ræða skort á byggingarlandi í eigu borgarinnar án þess að minnast á flugvöllinn. Flugvöllurinn er besta byggingarlandið í borginni og það er kominn tími til að það verði nýtt í annað en lúxusstæði fyrir einkaþotur og dýrt innanlandsflug sem fáir nýta sér og getur vel flust annað. 

Flugvallarsvæðið er jafn stórt og vesturbærinn, miðborgin eða hlíðarnar. Þarna mun byggjast upp 20 þúsund manna blönduð byggð með íbúðum fyrir almennan markað, leiguíbúðir og stúdentaíbúðir með mikilli og öflugri þjónustu og atvinnuhúsnæði. Vatnsmýrin er rennislétt landsvæði á suðurströnd borgarinnar með háskólana tvo og Landspítalann í túnfætinum. Hverfi sem gerir ráð fyrir góðum almenningssamgöngum og hjólastígum frá fyrsta degi. Þétt borgarhverfi með góðri nærþjónustu í tengslum við stóra vinnustaði. Hverfi sem tengir saman hlíðarnar, miðborgina og vesturbæinn og svo Kópavoginn með brú yfir á Kársnesið.

Spurningin er ekki hvort heldur hvenær og það er algjörlega háð því hverjir stjórna.

Á meðan umræðan um flugvöllinn kemst aldrei af öskurstiginu þar sem að rök og staðreyndir eru púaðar niður með tilfiningaþrungnum staðhæfingum um sjúkraflug þá er hætt við að allir hrökklist í burtu og að fíllinn fái hreinlega að taka sitt pláss í stofunni.

Sjúkraflug er mjög mikilvægt og því þarf að sinna. Því getur vel verið sinnt úr Hvassahrauni. Það er staðreynd.

Nú hefur „neyðarbrautin“ verið lokuð í ár og uppbygging á Hlíðarendasvæðinu komin vel af stað. Á þessum 12 mánuðum hefur ekkert alvarlegt atvik komið upp í tengslum við sjúkraflug. Á sama tímbili hafa 14 látist og 165 slasast alvarlvega í umferðarslysum og auk þess má að líkindum rekja 80 ótímabær dauðsföll til svifryksmengunar á sama tímabili. Staðreyndin er nefnilega sú að það er ekki nákvæm staðsetning innanlandsflugvallar sem ógnar lífi og heilsu landsmanna heldur mikil og hröð bílaumferð og mengunin sem henni fylgir. 

Í því samhengi er nauðsynlegt að benda á að það mun muna 50 milljónum ekinna kílómetra á ári á því hvort 20 þúsund manna byggð verði í Vatnsmýrinni eða austan Elliðaá. Þessi aukni akstur þýðir aukin umferð, meiri tafir, meiri mengun og aukið svifryk. Við það að keyra þessa 50 milljón kílómetra má gera ráð fyrir að 10 manns slasist í umferðinni og þar af tveir alvarlega. 

Ég vil því fílinn burt, flugvöll í Hvassahrauni og blómlega byggð í Vatnsmýrinni.

Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingar í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×