Þjálfari Nígeríu: Ísland er ekki með mestu tæknina en það spilar eins og lið Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2018 16:00 Kolbeinn Sigþórsson fagnar sigurmarki sínu á móti Englendingum á EM 2016. Vísir/Getty
Þjóðverjanum Gernot Rohr, þjálfara nígeríska landsliðsins í fótbolta, líst ekkert á D-riðilinn á HM 2018 sem Nígeríumenn drógust í og lái honum hver sem vill. Nígería mætir Lionel Messi og félögum í Argentínu, frábæru liði Króata og auðvitað strákunum okkar en Ísland og Nígería eigast við í Volgograd 22. júní í sumar. „Fyrsta markmiðið verður bara að komast upp úr riðlinum. Það er mikilvægast en þá þurfum við að ná öðru sætinu. Það verður mjög erfitt því við erum með mjög góðum liðum í riðli,“ segir Rohr í viðtali við New Telegraph. Sá þýski segir nokkuð augljóst af hverju Argentínumenn eru svona sterkir og bendir á að Króatía sé með miðjumenn sem leika hjá Barcelona og Real Madrid og framherja hjá Inter. Hann sér einnig fram á mjög erfiðan leik gegn litla Íslandi sem verður nýliði á HM í Rússlandi. „Leikur tvö á móti Íslandi verður erfiður. Þetta er lið sem vann England á EM 2016 í Frakklandi. Íslenska liðið er ekki með bestu tæknina en það spilar eins og lið og þess vegna er erfitt að vinna það,“ segir Gernot Rohr.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA Sport Viggó færir sig um set á nýju ári Handbolti Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira