Árni tekur við sem framkvæmdastjóri Loftleiða Daníel Freyr Birkisson skrifar 15. janúar 2018 11:06 Árni Hermannsson er næsti framkvæmdastjóri Loftleiða. mynd/loftleiðir
Árni Hermannsson mun taka við sem framkvæmdastjóri Loftleiða í næstu viku. Guðni Hreinsson, núverandi framkvæmdastjóri, hefur sagt starfi sínu lausu hjá Loftleiðum eftir fjórtán ára starf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Guðni hefur starfað hjá Loftleiðum frá 2003 og sem framkvæmdastjóri félagsins frá 2006 og leitt uppbyggingu félagsins undanfarin ár. Hann mun áfram starfa við flugtengda starfsemi því hann hyggst taka að sér miðlun og ráðgjöf við flugfélög og leigusala á alþjóðlegum mörkuðum. Guðni mun verða Loftleiðum innan handar næstu mánuði. Árni Hermannsson hefur verið fjármálastjóri Loftleiða frá 2002. Hann starfaði sem markaðstjóri Álits frá árinu 1999. Árið 2000 var hann ráðinn fjármálastjóri Álits og ári síðar fjármálastjóri ANZA sem varð til við sameiningu Álits, Miðheima, Nett og Veftorgs. Hann hefur setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja fyrir hönd Icelandair Group á undanförnum árum. Árni útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1999. Á árunum 1992-1995 lagði hann stund á hagverkfræði í Technische Hochshule í Darmstadt í Þýskalandi.
Ráðningar Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Gefa út afkomuspá eftir allt saman Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Fleiri fréttir Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Sjá meira