Fótbolti

Messi jafnaði markamet Müller

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi fagnar sögulegu marki sínu í gær.
Messi fagnar sögulegu marki sínu í gær. vísir/Getty
Gærdagurinn var sögulegur hjá argentínska snillingnum Lionel Messi, leikmanni Barcelona.

Hann spilaði þá sinn 400. leik fyrir félagið en hann er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu félagsins sem nær þeim áfanga.

Messi skoraði svo fyrsta markið í 3-0 sigri á Levante en það var 365 markið sem hann skorar fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni.

Hann jafnaði þar með eldgamalt markamet Þjóðverjans Gerd Müller yfir flest mörk í fimm stærstu deildum Evrópu.

Þetta var líka sögulegur dagur hjá miðjumanninum Andres Iniesta en hann spilaði sinn 650. leik fyrir Barcelona í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×