Skrautleg þrenna skilaði Russell Westbrook meti í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2017 13:30 Russell Westbrook. Vísir/Getty
Russell Westbrook hjá Oklahoma City Thunder hefur safnað þrennunum í NBA-deildinni á árinu 2017 og nú er svo komið að enginn leikmaður í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta hefur náð fleiri þrennum á einu almanaksári. Westbrook náði 35. þrennunni á árinu 2017 í nótt og var hún af skrautlegri gerðinni. Hann hitti nefnilega aðeins úr 3 af 17 skotum sínum í þessum leik á móti Indiana Pacers en endaði með 10 stig, 12 stoðsendingar og 17 fráköst.Russell Westbrook had a triple-double, despite shooting 3-of-17 from the field tonight. The 17.6 FG Pct is his lowest in any of his 88 career triple-doubles — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) December 14, 2017 Þetta var 88. þrennan hans Westbrook á ferlinum en með því að ná 35 þrennunni á almanaksárinu 2017 þá bætti hann met Oscar Robertson. Oscar Robertson var með 34 þrennur á árinu 1961 og var því búinn að eiga metið í 56 ár. Robertson vissi reyndar ekkert af því þegar hann spilaði enda varð þrennan ekki til fyrr en á níunda áratugnum eða þegar Oscar var löngu hættur að spila.Russell Westbrook now has the most triple-doubles in a calendar year. via @EliasSportspic.twitter.com/QFP009DqOw — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) December 14, 2017 Russell Westbrook er ekki með þrennu að meðaltali á þessu tímabili eins og því síðasta en hann er með 23,0 stig, 9,8 stoðsendingar og 9,1 frákast í leik. Á síðasta tímabili, þegar hann var kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar þá var hann með 31,6 stig, 10,7 fráköst og 10,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Westbrook hefur náð þremur þrennum í síðustu fimm leikjum og virðist ætla að enda árið í miklu þrennustuði. Það má því búast að hann bæti metið eitthvað út desember.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Leik lokið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Þrír ákærðir fyrir að reyna að fjárkúga fjölskyldu Schumacher Formúla 1 Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira