Jólaþorp úr mjólkurfernum 14. desember 2017 16:00 Á nokkrum kvöldum mætti búa til heilt jólaþorp úr tómum fernum. Sniðugt er að hafa þau misjafnlega há.
Tómar fernur eru fyrirtaks efniviður í föndur. Þær eru úr stífum pappa sem klippa má í ýmis form og yfirleitt er nóg til af þeim á hverju heimili. Lagið á fernunum býður sérstaklega upp á að forma úr þeim hús með hallandi þaki. Fernur úr stífum pappa eru efniviður sem yfirleitt er nóg til af heima. Föndurkvöld tilheyra aðventunni og um að gera að nota það sem til fellur heima sem efnivið. Úr fernum undan mjólk eða djús er hægt að búa til ýmislegt en bara með því að skera þær í sundur er komið efni í lítil ílát eða körfur undir nammi. Lagið á fernunum býður þó sérstaklega upp á að útfæra þær sem hús með hallandi þaki og á nokkrum kvöldum má föndra heilt jólaþorp. Það sem þarf til verksins er: Nokkrar fernur Pappír til að klæða fernurnar með Lím Skæri Blýantur Tússpenni til að teikna glugga og hurðir Leiðbeiningar: Byrjið á að skola fernurnar vel að innan og látið þær þorna. Breiðið úr pappírnum á borð og leggið fernuna ofan á, teiknið lauslega með blýanti meðfram fernunni allar hliðar og klippið út. Til að húsin verði ekki öll jafn há mætti skera botninn neðan af nokkrum fernum. Það gæti verið einfaldast fyrir litlar hendur að klippa út hverja hlið fyrir sig og líma á fernuna því það má alltaf líma renninga yfir samskeytin eða skreyta þau á annan máta. Þakið er einnig renningur, jafnbreiður hliðunum, sem má ná vel niður á „veggina“ þar sem hann er límdur fastur. Þegar búið er að fóðra alla fernuna með pappír er hægt að hefjast handa við að skreyta húsið. Teikna til dæmis á það glugga og dyr með tússpenna. Hér verður hugmyndaflugið að fá lausan tauminn því skreytimöguleikarnir eru óþrjótandi. Það væri til dæmis hægt að líma bómull á þakið fyrir snjó eða raða á það smartís og brjóstsykursmolum eins og oft er gert við piparkökuhús. Þá getur vel verið að í saumakassanum leynist tölur eða blúnduborðar sem mætti nota til að skreyta með. Með pensil og akrílmálningu að vopni mætti einnig mála fernuhúsin í skrautlegum útfærslum.
Föndur Jólaskraut Mest lesið Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Jól Sörur með karamellu pralíni að hætti Lindu Ben Jól Jólastöðin er komin í loftið Jól Aðventan með Lindu Ben: Pakkaskraut sem þú borðar Jól Aðventan með Lindu Ben: Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu Jól Vinsæl jóladagatöl á Íslandi: Bjór, snyrtivörur, kaffi og lakkrís Jól „Jólin hafa ekki alltaf verið auðveld“ Jól „Ég verð meira jólabarn með hverju árinu sem líður“ Jól Jólamolar: Viðhorfið til jólanna breyttist þegar hann fór að vinna á leikskóla Jól Marengshringur og jólakonfekt Evu Laufeyjar úr Ísland í dag Jól Fleiri fréttir Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Aðventan með Lindu Ben: Pakkaskraut sem þú borðar Sörur með karamellu pralíni að hætti Lindu Ben Aðventan með Lindu Ben: Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu Sjá meira