Borgaði 5,7 milljónir fyrir gamla skó af Michael Jordan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2017 14:30 Michael Jordan. Vísir/Getty
Dýrstu Air Jordan skórnir eru fundir. Þeir eru reyndar notaðir og meira en 30 ára gamlir en skórnir umræddu seldust fyrir metfé á uppboði hjá Heritage. Skór sem Michael Jordan spilaði í þegar hann kom aftur til baka eftir meiðsli 1985-86 tímabilið seldust fyrir 55 þúsund dollara eða 5,7 milljónir íslenskra króna. Aldrei áður hefur verið borgað svo mikið fyrir skó úr Air Jordan I línunni.Game-worn Air Jordan, altered to create ankle support for his 1986 injury return, sold for $55,000 by @HeritageAuction, record price for Air Jordan I. pic.twitter.com/kkL0DOuJ39 — Darren Rovell (@darrenrovell) November 20, 2017 Skórnir voru sérstaklega styrktir í kringum ökklann en Jordan var þarna að koma til baka eftir að hafa fótbrotnað í þriðja leik tímabilsins. Jordan missti af 64 leikjum á 1985-86 tímabilinu en spilaði fyrsta leikinn eftir meiðslin 15, mars 1986 á móti Milwaukee Bucks. Chicago Bulls tapaði þeim leik með 9 stigum en Jordan var með 12 stig á 13 mínútum. Jordan spilaði einn frægasta leikinn sinn þetta tímabil eða þegar hann skoraði 63 stig í leik í úrslitakeppninni á móti Boston Celtics í Boston Garden. Chicago Bulls tapaði þar fyrir verðandi meisturum Boston Celtics en eftir leikinn talaði Larry Bird um að þetta hafi verið guð dulbúinn sem Michael Jordan. Jordan skoraði 49 stig í fyrsta leiknum, 63 stig í öðrum leiknum og 19 stig í þriðja leiknum þar sem hann var einnig með 10 fráköst og 9 stoðsendingar. Boston Celtics vann hinsvegar alla þrjá leikina.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira