Arnar ráðinn yfirlæknir hjartaskurðdeildar Yale háskólasjúkrahússins Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2017 14:34 Arnar Geirsson.
Arnar Geirsson hjartaskurðlæknir hefur verið ráðinn yfirlæknir hjartaskurðdeildar Yale-New Haven Hospital, háskólassjúkrahúss Yale í New Haven í Connecticut í Bandaríkjunum. Í tilkynningu frá almannatengslafyrirtækinu Athygli segir að Yale-New Haven Hospital sé með stærstu sjúkrahúsum Bandaríkjanna með 1.540 sjúkrarúm. Sjúkrahúsið sé jafnframt aðalsjúkrahús Yale-New Haven Health System, heilbrigðisþjónustu sem samanstendur af fimm sjúkrahúsum með yfir 7.500 heilbrigðisstarfsmenn og samtals 2.560 sjúkrarúm. „Á hjartaskurðdeild Yale starfa 10 sérfræðingar sem gera um 1.500 hjartaskurðaðgerðir árlega. Deildin sérhæfir sig í flóknum hjartaaðgerðum, lokuaðgerðum (bæði opnum og innanæðaðgerðum), ósæðaraðgerðum, hjartaskiptum og barnahjartaskurðlækningum. Læknaskóli Yale er jafnframt einn af fremstu læknaskólum Bandaríkjanna og hafa allmargir Íslendingar stundað þar sérfræðinám. Arnar Geirsson er fæddur 9. október 1971. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1990, útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands 1997, stundaði sérnám í almennum skurðlækningum við Yale frá 1998 til 2005 og í hjartaskurðlækningum við University of Pennsylvania frá 2005 til 2007. Hann vann sem sérfræðingur í hjartaskurðlækningum á Yale háskólaspítalanum frá 2007 til 2012 og á Landspítalanum frá 2012 og þar til hann fór aftur til starfa sem sérfræðingur á Yale sumarið 2016. Arnar hefur gefið út fjölmargar vísindagreinar og stundar grunn- og klínískar rannsóknir tengdar ósæðarsjúkdómum og míturlokusjúkdómum. Arnar er giftur Sigríði Benediktsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands, nú kennara við Jackson Institute við Yale háskólann. Þau eiga saman þrjá syni á unglingsaldri og búa í New Haven í Connecticut,“ segir í tilkynningunni.
Ráðningar Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Sjá meira