Fótbolti

Sara Björk skoraði tvö mörk í Meistaradeildarleik á Ítalíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. Vísir/Getty
Sara Björk Gunnarsdóttir átti stórleik þegar þýska liðið Wolfsburg vann 4-0 útisigur á ítalska liðinu Fiorentina í sextán liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta.

Sara Björk skoraði tvö mörk fyrir Wolfsburg í leiknum en hún kom þýska liðinu í 1-0 á 49. mínútu og í 3-0 á 60. mínútu.

Leikurinn í kvöld fór fram á Artemio Franchi leikvanginum í Flórens.

Wolfsburg er nánast komið áfram í átta liða úrslitin en seinni leikurinn er á heimavelli liðsins í Þýskalandi.

Danski landsliðsfyrirliðinn Pernille Harder átti stoðsendingarnar í báðum mörkum Söru Bjarkar og skoraði síðan sjálf annað markið á 54. mínútu.

Fjórða mark Wolfsburg skoraði síðan þýska landsliðskonan Alexandra Popp á 73. mínútu.

Sara Björk Gunnarsdóttir hefur þar með skorað þrjú mörk í fyrstu þremur Meistaradeildarleikjunum sínum á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×