Skoðun

Íþróttaiðkun er besta forvörnin fyrir börn og unglinga

Una María Óskarsdóttir og Jón Hjaltalín Magnússon og Bjarni Jóhannsson skrifa
Hér á landi sem annarsstaðar hafa foreldrar áhyggjur af hreyfingarleysi barna sinna og ofþyngd, enda ofþyngd eitt stærsta heilsufarsvandamál þjóða heims. Rannsóknir sýna að virk þátttaka í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi skilar miklum árangri í forvarnarstarfi til að bæta andlega og líkamlega heilsu barna, unglinga og fullorðinna.

UMFÍ og ÍSÍ hafa lagt mikla áherslu á íþróttir sem mikilvægan þátt í að bæta lýðheilsu landsmanna í samstarfi við íþrótta- og ungmennafélög um land allt. Eins og gefur að skilja er rekstur og skipulag faglegrar íþróttastarfsemi íþróttafélögum kostnaðarsamur. Of margir foreldar, t.d. einstæðir með mörg börn, geta átt erfitt með að bjóða börnum sínum að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi vegna kostnaðar sem því fylgir, en miklu skiptir að börn efnaminni foreldra geti einnig tileinkað sér þann heppilega lífstíl að stunda íþróttir.

Flest sveitarfélög hafa á undanförnum árum hvatt foreldra til að beina börnum sínum í íþróttir með því að greiða hluta kostnaðar barnanna til viðkomandi íþróttafélags en það dugar skammt fyrir barnmargar fjölskyldur, einkum ef börnin hafa áhuga á fleiri en einni íþróttagrein. Þá hafa kostnaðarsöm Íslandsmót verið hindrun og dæmi eru til þar sem það hafi stöðvað þátttöku barna.

Íþróttafélög um allt land hafa með aðstoð sveitarfélaga, fyrirtækja og sjálfboðliða kappkostað að byggja keppnisvelli og íþróttahús en samt þarf átak í þessum málum svo þessi félög geti boðið iðkendum sínum upp á þátttöku í fleiri íþróttagreinum.

Því miður hafa margir stjórnmálamenn ekki enn áttað sig nægilega á mikilvægi íþrótta- og æskulýðsstarfs sem forvarna í þágu lýðheilsu. Miðflokkurinn ætlar að leggja aukinn kraft og fjármuni í forvarnir í samstarfi við íþróttahreyfinguna og önnur frjáls félagasamtök og vill eiga samvinnu við sveitarfélög um allt land, skóla og foreldra til að auðvelda foreldrum þátttöku barna sinna og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi. Ferðakostnaður innanlands dregur allt of mikið úr íþróttaiðkun barna og unglinga sérstaklega á landsbyggðinni. Við því þurfa stjórnvöld að bregðast.

Styðjum afreksfólkið

Við Íslendingar erum stolt að árangri okkar frábæra íþróttafólks á ólympíuleikum, í Evrópu- og heimsmeistarakeppunum svo og af atvinnumönnum okkar. Við fylgjumst grannt með sjónvarpsútsendingum frá leikjum þeirra og keppnum. Afreksíþróttafólkið okkar skapar fyrirmyndir og er mikil hvatning fyrir börn og unglinga til að taka þátt í íþróttum og um leið góð kynning fyrir land og þjóð. Fagna ber ákvörðun ríkisstjórnar Íslands árið 2016 að stórauka framlög til afreksíþrótta í áföngum í 400 milljónir árlega. Gera verður samkomulag við íþróttahreyfinguna um aukin framlög til unglingalandsliða til að eiga áfram landslið í fremstu röð.

Miðflokkurinn vonar að aðrir stjórnmálaflokkar muni styðja það mikilvæga forvarna- og lýðheilsustarf sem íþróttir eru til að bæta heilsu barna okkar og unglinga, þeim og foreldrum þeirra til mikillar ánægju og lífsgleði.

Hvað finnst þér lesandi góður?

Una María Óskarsdóttir uppeldis- menntunar- og lýðheilsufræðingur skipar 2. sæti framboðslista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.

Jón Hjaltalín Magnússon, verkfræðingur, formaður Samtaka íslenskra ólympíufara, fv. formaður Handknattleikssambandsins og frambjóðandi í 7. sæti Miðflokksins í Reykjavík Norður.

Bjarni Jóhannsson íþróttafræðingur skipar 12. sæti á framboðslista Miðflokksins í Reykjavík norður.



Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×