Skoðun

Píratar og loftslagsmál

Einar Brynjólfsson skrifar
Niðurstöður nýlegrar könnunar sýna að meirihluti landsmanna hefur áhyggjur að loftslagsmálum. Svo virðist sem almenningur sé að vakna til vitundar um þá vá sem vofir yfir komandi kynslóðum ef við tökum ekki á vandanum sem að okkur steðjar. Við Píratar höfum markað afgerandi stefnu í þessum málaflokki, líkt og mörgum öðrum, og samkvæmt óháðri úttekt vefsíðunnar loftslag.is eru „Píratar með metnaðarfyllstu stefnuna“ í loftslagsmálum, af öllum íslenzkum stjórnmálaflokkum. Þar stendur meðal annars:

„Ísland á að taka skýra afstöðu gegn frekari olíuleit og olíuvinnslu í efnahagslögsögunni.“

„Minnka skal losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við Parísarsamninginn fyrir árið 2025 (um 40% prósent) og að önnur losun þessara efna verði því sem næst engin árið 2040.“

„ … ökutæki og vélar sem nýta jarðefnaeldsneyti skulu bera mengunarrentu í formi kolefnisskatts sem fer stighækkandi eftir því sem eldsneytisneysla og losun loftmengunarefna er meiri.“

„Byggja skal upp innviði fyrir rafknúin og visthæf ökutæki og skip.“

„Ríkið skuli með svipuðum hætti stuðla að og styðja mengunarminni almenningsamgöngur.“

„Innleiða skal strax 6. viðauka við Marpol samningsins um varnir gegn mengun sjávar frá skipum. Þannig að hafið umhverfis Ísland verði ECA svæði og að skipum sem sigla þar um leyfist að losa brennisteinsmagn innan við 0,1%.“

„Meðferð og notkun svartolíu skal vera með öllu bönnuð í landhelgi Íslands fyrir árið 2025.“

„Skip sem sigla um íslenska landhelgi án þess að leggja að höfn eiga að greiða “landhelgisgjald” og það sé hærra fyrir skip sem ekki hafa bláfána, umhverfisvottun eða önnur óvéfengjanleg vottorð sem sýna fram á að ákvæði MARPOL séu uppfyllt í skipinu.“

„Ísland skal setja metnaðarfull markmið til að minnka skjótlega alla losun gróðurhúsalofttegunda í það minnsta í samræmi við Parísarsamkomulagið frá 2016 auk þess sem stórátak verður gert í að minnka losun sem ekki fellur undir Parísarsamninginn, t.d. fimm ára áætlun um endurheimt votlendis og 10 ára áætlun í skógrækt og uppgræðslu. Þarna má meðal annars setja markmið þess efnis að Ísland verði kolefnisjafnað árið 2025.“

Við lítum svo á að aðgerða sé þörf, og það strax. Við getum ekki látið reka á reiða í stærsta hagsmunamáli komandi kynslóða. Píratar munu leggja sitt af mörkum að afloknum kosningum, fái þeir brautargengi til þess.

Einar Brynjólfsson

Höfundur er alþingismaður og oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×