Körfubolti

Domino's Körfuboltakvöld: Lið og leikmenn 4. og 5. umferðar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bestu leikmenn 4. umferðar karla og 5. umferðar kvenna.
Bestu leikmenn 4. umferðar karla og 5. umferðar kvenna. mynd/skjáskot
Fjórða umferð Domino's deildar karla og fimmta umferð Domino's deildar kvenna voru gerðar upp í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudaginn.

Matthías Orri Sigurðarson átti frábæran leik þegar ÍR vann Njarðvík og hann var valinn leikmaður umferðarinnar í karladeildinni.

Hjá konunum varð Stjörnukonan Danielle Rodríguez fyrir valinu en hún leiddi Garðbæinga til sigurs gegn Snæfelli. Rodríguez var með þrefalda tvennu í leiknum; 31 stig, 14 fráköst og 12 stoðsendingar.

Matthías Orri var að sjálfsögðu í liði umferðarinnar hjá körlunum. Auk hans voru Reggie Dupree (Keflavík), Antonio Hester (Tindastóli), Pálmi Geir Jónsson (Þór Ak.) og Emil Karel Einarsson (Þór Þ.) í liðinu. Þjálfari liðsins var Friðrik Ingi Rúnarsson, aðra umferðina í röð.

Breiðablik átti tvo fulltrúa í liði 5. umferðar kvennadeildarinnar; Auði Írisi Ólafsdóttur og Sóllilju Bjarnadóttur. Stjarnan átti einnig tvo fulltrúa í liðinu; Rodríguez og Sylvíu Rún Hálfdánardóttur. Keflvíkingurinn Thelma Dís Ágústsdóttir var einnig í liðinu. Þjálfari þess var Hildur Sigurðardóttir, þjálfari Breiðabliks.

Leikmenn 4. umferðar karla og 5. umferðar kvenna
Lið 4. umferðar í Domino's deild karla
Lið 5. umferðar í Domino's deild kvenna

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×