Skoðun

Hvað getur ferðaþjónustan lært af fótboltanum?

Helga Árnadóttir skrifar
Árangurinn sem strákarnir okkar í knattspyrnulandsliðinu hafa náð er magnaður. Ekki nóg með að hafa slegið í gegn á EM í Frakklandi í fyrra þá hafa þeir tryggt sér sæti á lokamóti HM í Rússlandi á næsta ári. Ekki má heldur gleyma frábærum árangri stelpnanna okkar sem hafa verið fastagestir á EM síðustu ár. Fyrir fáum árum hefði engan grunað að jafn fámenn þjóð eins og Ísland er ætti eftir að ná slíkum árangri enda er eftir honum tekið um allan heim.

En hver er lykillinn að þessum frábæra árangri? Hugarfarið og samtakamátturinn hefur vissulega komið okkur langt, en það er fleira sem kemur til. Með markvissri uppbyggingu innviða á undanförnum árum, svo sem byggingu knattspyrnuhúsa, sparkvalla um land allt og menntun þjálfara, hefur verið lagður traustur grunnur til að byggja á. Framtíðarsýnin er skýr og árangurinn hefur ekki látið á sér standa.

Setjum þetta í samhengi við ferðaþjónustuna. Hvernig getum við lært af því sem vel hefur verið gert í fótboltanum?

Í ferðaþjónustunni eru markmiðin að ákveðnu leyti skýr. Við viljum efla atvinnugreinina um allt land, allan ársins hring. Við viljum byggja upp sjálfbæra ferðaþjónustu og þannig ferðaþjónustulandið Ísland sem gott er að búa í. Þannig eykst framleiðni greinarinnar, álag verður jafnara og samfélagsgrunnur og byggð í landinu er treyst.

Leiðirnar að þessum markmiðum eru ekki nægjanlega skýrar og markviss uppbygging innviða liggur ekki fyrir. Við þurfum að stórefla samgöngukerfið, sem er lífæð ferðaþjónustunnar og landsbyggðarinnar allrar. Hvernig ætlum við að byggja upp áhugaverða staði um allt land? Hvernig tryggjum við sjálfbæra ferðaþjónustu? Hvað með heildarupplifun ferðamannsins? Hvernig eflum við samtakamáttinn og fáum alla hagaðila til að ganga í takt?

Á undanförnum árum höfum við upplifað gríðarlegan vöxt í komum erlendra ferðamanna hingað til lands. Þessum mikla vexti fylgja vissulega áskoranir og við megum ekki gleyma því sem vel er gert. Við Íslendingar erum góðir gestgjafar, við búum á ævintýraeyju sem býður upp á stórkostleg tækifæri til enn frekari sóknar.

Eftir leikinn fræga þar sem HM sætið var tryggt var eftirtektarvert hvernig leikmenn og þjálfari tjáðu sig í fjölmiðlum. Þar voru lykilorðin samheldni allra og skýr markmið. Framlag allra væri jafn mikilvægt, jafnt leikmanna, þjálfara, starfsfólks og ekki síst stuðningsmanna. Allir lögðu sig fram af heilum hug, sem liðsheild með fulla trú á markmiðinu.

Tökum okkur knattspyrnuna til fyrirmyndar og treystum þann grunn sem þarf til að efla ferðaþjónustuna enn frekar á sjálfbæran hátt. Við eigum mikið undir að vel gangi í ferðaþjónustu hér á landi og þar þurfa allir að taka höndum saman – stjórnvöld, sveitarfélög, atvinnugreinin sjálf og landsmenn allir.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×