Lífið

Logi og Þórdís eignuðust strák

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nýbakaðir foreldrar sælir með erfingjann sem sjá má á myndinni hér að neðan.
Nýbakaðir foreldrar sælir með erfingjann sem sjá má á myndinni hér að neðan. Logi Pedro
Reykjavíkurdóttirin Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson eignuðust strák á sunnudaginn. Logi greinir frá þessu á Facebook og fleiri hundruð manns fagna með tónelsku vinunum. 

Logi Pedro, Þórdís Björk og herrann tveggja daga gamli.Logi Pedro
Ég hef aldrei aldrei aldrei nokkurntímann orðið vitni að öðru eins afreki og krafti og hjá móður hans. Í fullri alvöru. Það bliknar allt, bókstaflega allt í samanburði við það sem hún lagði á sig fyrir þetta barn,“ segir Logi.

Logi og Þórdís eru ekki lengur par en þau hafa sjálf greint frá því hve spennt þau væru bæði fyrir barninu.

Þau kynntust fyrir rúmum áratug á kórkynningu Menntaskólans við Hamrahlíð og urðu skotin hvort í öðru.

Því má með sanni segja að enn eitt MH kórbarnið sé fætt eins og Logi komst að orði þegar þau greindu frá óléttunni.

„Öllum heilsast vel og hárprúði maðurinn er hress og kátur. Og já nýja Drake platan var í gangi þegar hann lét loksins sjá sig,“ segir Logi.

Færsluna má sjá hér að neðan.

 



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.