Lífið

Kórar Íslands: Jórukórinn

Skemmtilegar konur hér á ferð.
Skemmtilegar konur hér á ferð.
Kórar Íslands er nýr skemmtiþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, er kynnir þáttanna. Dómnefndina skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir. 

Þriðji þátturinn fer í loftið á sunnudaginn og koma þar fram fjórir kórar og keppa um tvö laus sæti áfram í undanúrslitin.

Hér að neðan ætlum við að fá að kynnast Jórukórnum frá Selfossi sem kemur fram í þriðja þætti á sunnudagskvöldið í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19:10.

Jórukórinn

Um er að ræða kór sem samanstendur af 50-60 konum frá Suðurlandinu en allar eiga þær það sameiginlegt að elska að syngja fjölbreytta tónlist. Stjórnandi er Stefán Þorleifsson.

Fyrir ári síðan söng kórinn á 20 ára afmælistónleikum og var þemað ABBA.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.