Körfubolti

Kristrún aftur í Val

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kristrún lék með Val á árunum 2012-15
Kristrún lék með Val á árunum 2012-15 mynd/valur
Kristrún Sigurjónsdóttir hefur snúið aftur í herbúðir Vals fyrir tímabilið í Dominosdeild kvenna.

Síðustu tvö tímabil var Kristrún á mála hjá Skallagrími. Framherjinn reyndi skoraði 8,5 stig, tók 3,7 fráköst og átti 1,8 stoðsendingu að meðaltali á síðasta tímabili, en hún spilaði aðeins tæpar 23 mínútur.

Kristrún á að baki 34 leiki með A-landsliði Íslands.

“Ég hlakka mjög mikið til að spila með þessum stelpum aftur. Liðið er með góða blöndu af stórum og litlum leikmönnum og metnaðarfullum þjálfara sem ég hlakka til að vinna með. Ein af ástæðunum fyrir að skipta um lið var sú að við fjölskyldan vorum að flytja úr Borgarnesi og aftur í bæinn. Við erum mjög þakklát fyrir þann tíma sem við áttum Borgarnesi,” sagði Kristrún í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Vals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×