Fótbolti

Sjáðu þrennuna sem Kane skoraði á Kýpur og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harry Kane hefur verið óstöðvandi að undanförnu.
Harry Kane hefur verið óstöðvandi að undanförnu. vísir/getty
Harry Kane skoraði öll mörk Tottenham í 0-3 sigri á APOEL í H-riðli Meistaradeildar Evrópu í gær.

Sjö aðrir leikir fóru fram í 2. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gær.

Í hinum leik H-riðils vann Real Madrid 1-3 sigur á Borussia Dortmund. Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis fyrir Evrópumeistarana.

Í E-riðli gerðu Spartak Moskva og Liverpool 1-1 jafntefli og Sevilla bar sigurorð af Maribor, 3-0. Wissam Ben Yedder skoraði öll mörk Sevilla.

Manchester City er mð fullt hús stiga í F-riðli eftir 2-0 heimasigur á Shakhtar Donetsk. Í hinum leiknum vann Napoli 3-1 sigur á Feyenoord.

Porto gerði góða ferð til Mónakó og vann 0-3 sigur á heimamönnum. Í hinum leik G-riðils lagði Besiktas RB Leipzig að velli, 2-0.

Öll mörkin úr Meistaradeildinni í gær má sjá hér að neðan.

Spartak Moskva 1-1 Liverpool
Sevilla 3-0 Maribor
Man City 2-0 Shakhtar Donetsk
Napoli 3-1 Feyenoord
Monaco 0-3 Porto
Besiktas 2-0 RB Leipzig
APOEL 0-3 Tottenham
Dortmund 1-3 Real Madrid



Fleiri fréttir

Sjá meira


×