Hugmyndasmiður heimilisins Sólveig Gísladóttir skrifar 29. september 2017 15:00 Elsa Kristín er mikill fagurkeri. Hún rekur kaffihúsið Mom's Secret Café í Listasafni Íslands og er með snappið Elsadesign.com þar sem hún sýnir þau verkefni sem hún er að vinna að. Myndir/Anton Brink Vísir/Anton Brink
Elsa Kristín Auðunsdóttir og Þórður Kárason keyptu sér hús í Garðabæ í byrjun árs. Þau hafa komið sér vel fyrir enda Elsa snillingur í að gera fínt í kringum sig og elsta dóttirin hefur erft næmt auga móður sinnar fyrir hinu fagra. Elsa er aðalhugmyndasmiðurinn þegar kemur að skipulagningu heimilisins og framkvæmir mikið sjálf í samstarfi við Þórð sem er pípulagningameistari. Elsa rekur kaffihúsið sitt Mom's secret café í Listasafni Íslands ásamt því að vera með opið snapp undir nafninu Elsadesign.com þar sem hún sýnir þau verkefni sem hún hefur verið að vinna að. „Ég ætlaði reyndar aldrei að hafa snappið opið og nafnið var dálítið grín milli mín og vinkvenna minna af því ég er alltaf með eitthvað, að gera upp hluti, breyta og bæta," segir Elsa glettin. Útlit stofunnar er hugarsmíð Elsu frá a til ö og hver hlutur á sinn stað. Borðstofustólarnir eru úr Willamia á Garðatorgi en stofusófinn er gamall sófi sem nýverið var yfirdekktur með svörtu leðri.Vísir/Anton BrinkÁhugasöm frá unga aldri „Ég er stílistinn og ræð hvernig er inni hjá okkur enda er þetta mitt áhugamál og ég hef mikla ástríðu fyrir að hafa fínt í kringum mig og hef haft það frá unga aldri,“ segir Elsa og telur áhugann liggja í ættinni. „Pabbi og mamma eru vön að gera hlutina sjálf. Mamma er mikill fagurkeri líkt og systir mín og ég ólst upp við að heimilið væri alltaf fínt,“ segir Elsa sem er óhrædd við að takast á við ný verkefni. „Ég læri bara það sem ég þarf að læra ef mig langar að gera eitthvað,“ segir hún en flestar sínar hugmyndir segist hún fá hjá sjálfri sér. „Ég bara sé fyrir mér hvernig hlutirnir eiga að vera.“Eldhússkáparnir eru gamlir en voru málaðir svartir. Höldurnar eru nýjar líkt og tækin og borðplatan.Vísir/Anton BrinkGert upp á hagkvæman hátt Elsa og Þórður keyptu húsið sitt við Ásbúð í Garðabæ í febrúar og fluttu inn í byrjun maí. Tímann þar á milli nýttu þau til að láta mála, skipta um einhver gólfefni og laga það sem nauðsynlega þurfti að laga. Í sumar hafa þau haldið áfram að koma sér fyrir og eru nú orðin nokkuð sátt við árangurinn. Eldhúsið fékk hvað mesta yfirhalningu en þó án þess að skipta um skápa. „Okkur langaði að gera eitthvað flott án þess að það kostaði of mikið enda langar okkur síðar meir að opna eldhúsið inn í stofu sem verður meiri framkvæmd,“ segir Elsa en þau máluðu innréttinguna svarta, tóku niður efri skápa, settu nýjar borðplötur, höldur, vask og tæki. „Fólk trúir því ekki að þetta sé gamla innréttingin.“ Skipt var um gólfefni í svefnherbergjum og skipt um hurðir. Stofan var aðeins máluð en svo hefur Elsa dundað sér við að raða saman fallegum hlutum, gömlum og nýjum. „Ég hef gaman af því að blanda saman nýju og gömlu,“ segir hún og tekur sem dæmi fallegan sófa. „Þennan keyptum við notaðan, lökkuðum viðinn svartan og létum yfirdekkja með svörtu leðri.“Heimasætan Laufey Líf 12 ára hannaði sjálf herbergið sitt.Vísir/Anton BrinkHannaði herbergið 12 ára Saman eiga þau Þórður tvær dætur, þriggja ára og níu mánaða, og fyrir átti Elsa dóttur, Laufeyju Líf, 12 ára, sem hefur erft næmt auga móður sinnar. „Hún hefur mjög sterkar skoðanir á hvernig hlutirnir eigi að vera í herberginu hennar. Hún útbjó lista yfir hvernig hún vildi skipuleggja það, valdi liti, húsgögn og skraut og ég fékk engu að ráða,“ segir Elsa og hlær. Hún er afar stolt af dótturinni enda útkoman afar flott.Svefnherbergi yngri stelpnanna er ævintýralegt. Skreytingar á veggjum minna á snæviþakin fjöll en bleikir prinsessulitir ráða ríkjum.Vísir/Anton BrinkSérleikherbergi er snilld Tvær yngri dæturnar deila svefnherbergi. „Þar var markmiðið að hafa allt sem krúttlegast og prinsessulegast. Ég vildi hafa smá ævintýraþema og fékk því málarann til að útbúa fjöll með snjó á veggina,“ segir Elsa. Barnaherbergin eru tvö, í öðru er sofið en í hinu leikið. „Þetta er sniðugt fyrirkomulag því þá er alltaf fínt í svefnherberginu og ekki verið að leika sér eins mikið uppi í rúmi.“Litlu stelpurnar eru með sérleikherbergi þar sem þær geta ruslað til eins og þær vilja.Vísir/Anton BrinkSkemmtilegt eilífðarverkefni Þó ýmislegt sé búið að framkvæma er margt eftir. „Nú er verið að mála húsið að utan. Næsta sumar skiptum við um þakkant og tökum garðinn í gegn hjá okkur. Svo langar mig að taka svefnherbergið mitt í gegn og skipta um teppi á stigapalli. Verkefnin eru endalaus en maður verður að forgangsraða,“ segir Elsa sem hlakkar til að takast á við þetta skemmtilega eilífðarverkefni.Elsa hefur gaman af því að finna skrautmuni sem passa vel inn í rýmið.Vísir/Anton BrinkSófinn yfirdekkti og svartmálaði kemur mjög vel út.Vísir/Anton BrinkPrinsessur og ævintýri fá sinn sess í barnaherbergjunum.Vísir/Anton Brink
Hús og heimili Mest lesið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Lífið Emilíana Torrini einhleyp Lífið Benedikt og Sunneva Einars selja slotið Lífið Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Lífið „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Lífið „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Makamál „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Lífið Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Lífið Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Lífið Fleiri fréttir Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira