Lífið

Kísilkóngurinn selur 450 fermetra einbýlishús á 150 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnús Ólafur Garðarsson hefur verið mikið í fjölmiðlum síðustu daga.
Magnús Ólafur Garðarsson hefur verið mikið í fjölmiðlum síðustu daga.
Magnús Ólafur Garðarsson, fyrrverandi forstjóri og stofnandi hins umdeilda fyrirtækis United Silicon, er grunaður um hafa dregið sér um hálfan milljarð með fölsuðum reikningum gefnum út á búnaðarframleiðandann Tenova Pyromet á Ítalíu.

Hann er jafnframt sakaður um að hafa haldið áfram svikum eftir að hann hætti í stjórn United Silicon og haft samband við Tenova eftir að hann var hættur afskiptum af rekstri kísilversins.

Ný stjórn United Silicon hefur kært Magnús til embættis héraðssaksóknara vegna málsins og Arionbanki, stærsti hluthafi fyrirtækisins íhugar að kæra. Magnús vísaðar þessu öllu hins vegar á bug með yfirlýsingum

Magnús hefur nú sett einbýlishús sitt á sölu en það stendur við Huldubraut 28 í Kópavogi og er ásett verð 150 milljónir. Hann keypti húsið af Ólafi Ólafssyni og Ingibjörgu Kristjánsdóttur fyrir tveimur árum.

Um er að ræða 305 fermetra einbýlishús en í raun er það mun stærra þar sem um 150 fermetra kjallari er ekki inni í fermetrafjöldanum. 

Fasteignamatið er 97,7 milljónir og eru alls átta herbergi í húsinu sem byggt var árið 1994. Húsið er allt hið glæsilegasta og er til að mynda stór pallur fyrir framan það og má þar finna góðan pott. Hér að neðan má myndir af eigninni.





Fallegt hús í Kópavoginum.
Björt og fallegt inni í stofu.
Kósý sjónvarpshol.
Borðstofan er smekkleg.
Stórt og gott eldhús.
Pottur í garðinum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.