Snorri Steinn: Það kemur að því að ég spila Einar Sigurvinsson skrifar 14. september 2017 23:55 Snorri Steinn Guðjónsson Vísir/Ernir
Snorri Steinn Guðjónsson stýrði Valsliðinu til sigurs í kvöld í fyrsta leik sínum sem þjálfari í Olís deild karla í handbolta en Valur vann þá þriggja marka sigur á Gróttu, 24-21. „Ég er mjög ánægður með sigurinn og mjög ánægður með tvö stig, ekki spurning. Ég er bara nokkuð ánægður með leikinn svona heilt yfir. Auðvitað er fullt af hlutum sem við þurfum að laga en það er gott að vera komnir á blað og að byrja þetta á sigri,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, í samtali við Vísi í leikslok. „Við förum inn í hálfleikinn með fimm mörk og ætluðum náttúrlega að byrja seinni hálfleikinn allt öðruvísi en við gerðum og hleyptum þeim inn í leikinn. Við gerðum það eiginlega þrisvar sinnum, við vorum komnir með þetta nokkuð góða stöðu en gerum þetta að aðeins meiri leik en þetta hefði þurft að vera. Við erum með einverja níu til tíu tæknifeila í seinni hálfleik og fjórtán í heildina, það er náttúrulega of mikið. Svo er smá spenna í þessu í lokin, þetta var hörkuleikur, barátta og spenningur, það er bara fínt að vinna,“ sagði Snorri Steinn. „Hvern viltu að ég taki út úr liðinu?“ spurði Snorri á móti, aðspurður hvort hann ætlaði sér að fara að koma inn á. „Ég var með og Anton í dag á miðjunni og var ánægður með þá báða. En jú, það kemur að því að ég spila, hvenær það verður kemur bara í ljós,“ sagði Snorri Steinn, þjálfari Valsmanna, að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Þórir hefur ekki áhuga Handbolti „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart umhverfi“ Fótbolti David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Í beinni: Liverpool-Accrington Stanley | Sextán ára strákur byrjar hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn Enski boltinn Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Fleiri fréttir Þórir hefur ekki áhuga „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Sandra og félagar sterkari á taugum í lokin Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum HM úr sögunni hjá Arnari Frey „Það mikilvægasta sem við eigum“ Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Tómarúm eftir brotthvarf Landins og Hansens úr landsliðinu Dagur hundóánægður eftir sigur og saknar lykilmanns Eyjaför hjá bikarmeisturunum Fengið spark í rassgatið frá Guðjóni Val „Vonandi eitthvað til að byggja á í Evrópuleiknum“ Haukakonur byrja nýtt ár á tveimur sigurleikjum Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stórsigri á gömlu félögunum Uppgjörið: Valur - Fram 31-28 | Valskonur láta ekkert undan Dana Björg ekki tapað síðan hún kom til baka af EM Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Mikið áfall fyrir Eyjakonur Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið „Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“ Meiðslin sett strik í undirbúning Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Frábærar fréttir fyrir Frakka Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Sjá meira