Menning

Fegurstu hugmyndir geta orðið ógnvekjandi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Helgi Hjalta­lín gerir tilraun til að skilja og læra meira um þessa veröld í gegnum miðla myndlistarinnar.
Helgi Hjalta­lín gerir tilraun til að skilja og læra meira um þessa veröld í gegnum miðla myndlistarinnar.
Í tilefni Ljósanætur hefur Listasafn Reykjanesbæjar opnað sýninguna Horfur – Prospects í listasal Duushúsa. Þar gerir Helgi Hjaltalín Eyjólfsson myndlistarmaður tilraun til að útskýra fyrir sér ástand heimsins, læra meira um þá veröld sem við byggjum og meta hverjar horfurnar séu. 

„Ég er svolítið að skoða hvernig við skiptum okkur upp í hópa sem aftur skapar árekstra og ofbeldi. Skipting í þjóðríki er mannanna verk og það eru búnar til hugmyndir kringum þau sem í besta falli eru ýkjusögur,“ segir Helgi.

Í sýningarskrá er texti eftir Helga Þorgils Friðjónsson myndlistarmann. Þar segir meðal annars: „Þrátt fyrir fegurðina og drifkraftinn og framtíðarsýnina, jafn undarlegt og það virðist, er líka undirliggjandi ógn. Frelsi, jafnrétti og bræðralag getur verið steypt í mót sérhópa. Þarna einhvers staðar er gegnumgangandi þráður í verkum Helga.“

Helgi Hjaltalín hefur verið virkur í sýningarhaldi síðan á námsárunum. Þessi sýning hans stendur til 5. nóvember.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.