Alfreð með fullkomna þrennu í sigri Augsburg

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alfreð hefur verið funheitur fyrir framan markið undanfarnar vikur.
Alfreð hefur verið funheitur fyrir framan markið undanfarnar vikur. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var hetja Augsburg í 3-0 sigri á Köln á heimavelli í dag en hann skoraði öll þrjú mörk Augsburg í leiknum í fyrsta sigri liðsins á þessu tímabili.

Alfreð sem opnaði markareikning sinn á fyrstu mínútu síðasta leiks var 22. mínútur að koma heimamönnum yfir er hann skallaði fyrirgjöf Philipp Max í netið af stuttu færi. Hafði hann fundið sér pláss á milli varnarmanna og fékk að skalla boltann óáreittur.

Tíu mínútum síðar bætti hann við af vítapunktinum eftir að Jonas Hector, landsliðsbakvörður Þýskalands, gerðist brotlegur inn í vítateig Augsburg. Fór Timo Horn í vitlaust horn en það kom ekki að sök, vítaspyrna Alfreðs var afar örugg og hafnaði í hliðarnetinu.

Fékk hann að klára leikinn og náði að fullkomna þrennuna á 95. mínútu leiksins er hann fylgdi eftir skoti sem hafnaði í stönginni og renndi boltanum í autt netið með vinstri fæti.

Náði hann því svokallaðri fullkomnri þrennu, eitt mark með sitt hvorum fæti og eitt skallamark en hann er nú búinn að skora fjögur mörk í fyrstu þremur umferðunum.

Dortmund mistókst að að nýta liðsmuninn í 0-0 jafntefli gegn Freiburg á útivelli en Dortmund lék manni fleiri frá 27. mínútu en náði ekki að nýta sér það. Voru þetta fyrstu stigin sem Dortmund glutrar á þessu tímabili eftir tvo sigurleiki í röð fram að því.

Þá vann Mainz öruggan sigur gegn Bayer Leverkusen 3-1 á heimavelli en Mönchengladbach horfði á eftir stigunum þremur til Frankfurt í 0-1 sigri gestanna en lokaleikur dagsins er á milli Hoffenheim og Bayern Munchen.

Úrslit:

Mainz 3-1 Bayer Leverkusen

Borussia Mönchengladbach 0-1 Eintracht Frankfurt

Augsburg 3-0 Köln

Freiburg 0-0 Dortmund

Wolfsburg 1-1 Hannover.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira