Þrenna hjá Messi gegn nágrönnunum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Messi og félagar byrja tímabilið af krafti.
Messi og félagar byrja tímabilið af krafti. vísir/epa
Barcelona vann öruggan 5-0 sigur á Espanyol í lokaleik dagsins í spænska boltanum en Lionel Messi skoraði þrjú af fjórum mörkum Börsunga í leiknum sem eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Ousmane Dembele byrjaði leikinn á bekknum en þreytti frumraun sína síðasta hálftímann í leiknum eftir mörkin þrjú frá Messi. Náði hann að leggja upp mark fyrir Luis Suarez í uppbótartíma leiksins.

Messi kom Börsungum 3-0 yfir með mörkum eftir undirbúning frá Ivan Rakitic og Jordi Alba í tvígang en hann er kominn með fimm mörk í þremur leikjum.

Gerard Pique innsiglaði síðan sigurinn á 87. mínútu með fjórða marki Barcelona sem hefur skorað átta mörk í fyrstu leikjunum og náð að halda hreinu í öllum leikjunum þremur.

Eru Börsungar komnir með fjögurra stiga forskot á erkifjenduna í Real Madrid strax í upphafi tímabils eftir óvænt 1-1 jafntefli Madrídinga gegn Levante fyrr í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira