Skiptu á þeim fyrsta og síðasta úr nýliðavalinu 2011 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2017 14:30 Kyrie Irving og Isiah Thomas í leik Cleveland og Boston á síðasta tímabili. vísir/getty
Sem kunnugt er skipti Cleveland Cavaliers stórstjörnunni Kyrie Irving til Boston Celtics í nótt. Í staðinn fékk Cleveland Isiah Thomas, Jae Crowder, Ante Zizic og fyrsta valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Irving og Thomas eru meðal bestu sóknarmanna NBA-deildarinnar. Thomas var þriðji stigahæsti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili með 28,9 stig að meðaltali í leik á meðan Irving var í 11. sæti á stigalistanum með 25,2 stig að meðaltali í leik. Irving og Thomas komu báðir inn í NBA árið 2011 og eru því að hefja sitt sjöunda tímabil í deildinni. Leið þeirra inn í NBA var þó nokkuð ólík. Eftir eitt tímabil með Duke háskólanum var hinn 19 ára gamli Irving valinn númer eitt í nýliðavalinu 2011 af Cleveland sem var þá enn að jafna sig eftir brotthvarf LeBrons James til Miami Heat. Thomas var hins vegar valinn númer 60, eða síðastur, í nýliðavalinu 2011. Það var Sacramento Kings sem veðjaði á þennan smávaxna leikstjórnanda sem var orðinn 22 ára þegar hann kom inn í NBA. Sex árum eftir að þeir voru valdir í nýliðavalinu í NBA eru Irving og Thomas leikendur í einum stærstu félagaskiptum deildarinnar á síðustu árum. Þess má svo geta að Cleveland og Boston mætast á fyrsta degi nýs tímabils í NBA 17. október næstkomandi.
NBA Tengdar fréttir Irving til Boston í skiptum fyrir Thomas Risastór skipti í NBA-deildinni áttu sér stað í nótt og er Kyrie Irving farinn frá Cleveland. 23. ágúst 2017 08:00 Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira
Irving til Boston í skiptum fyrir Thomas Risastór skipti í NBA-deildinni áttu sér stað í nótt og er Kyrie Irving farinn frá Cleveland. 23. ágúst 2017 08:00