Æskunnar sæla á ljósmyndasýningunni Juvenile Bliss Stefán Þór Hjartarson skrifar 26. ágúst 2017 12:00 Húsnæði gömlu rakarastofunnar á Klapparstíg mun hýsa sýninguna. Vísir/Ernir
Juvenile er oft tengt alvarlegum hlutum, eins og juvenile fangelsi í Bandaríkunum – mig langaði til að nota þann titil og setja fyrir aftan það bliss, sem er svona sjúklega „joyful“ augnablik. Þaðan kemur titillinn inn og hóparnir sem ég er að mynda eru tvær kynslóðir sem lifa óhefðbundnu lífi á einhverskonar jaðar,“ segir ljósmyndarinn Þórsteinn Sigurðsson, eða Xdeathrow, sem opnar í næsta mánuði ljósmyndasýninguna Juvenile Bliss. Sýningin verður haldin í gömlu Rakarastofunni á Klapparstíg. Juvenile bliss er samansafn mynda af tveimur hópum sem Þórsteinn elti um og eiga það sameiginlegt að vera á jaðarnum. Þórsteinn segir myndirnar oftast nær hlutlausar, að hann stilli engum upp og reyni frekar að vera eins og fluga á vegg. „Fyrri hópurinn eru vinir mínir, í raun er ég að vinna heimildaljósmyndun á eigin félagsskap og þar er svona graff, skeit og pönk „element“ í gangi. Ég hef alltaf leitað í þannig fólk og tek mest eftir þannig fólki. Síðan var ég að mynda 15 -16 ára krakka í vetur og sumar sem ég fékk að kynnast og sem hleyptu mér inn í sínar aðstæður. Ég er mjög kaotískur þegar kemur að þessari vinnu minni – ég bý ekki til konsept sem ég fylgi síðan hart eftir. Þetta er meira eitthvað sem er búið að vera að gerast og einhverskonar framlenging af sjálfum mér, því lifi sem ég lifi og því fólki sem ég umgengst og kynnist. Þessar myndir eru teknar alveg frá 2006 og til dagsins í dag. Mig langaði til að hnýta saman tvær kynslóðir sem mér fannst eitthvað spennandi við, eitthvað mjög tært sem ég hrífst af. Það er svona pönk element í báðum þessum hópum sem ég er búinn að vera að mynda, það sem er sameiginlegt í þessum hópum er að hvorugur hópurinn fer eftir þessum „basic“ reglum um hvernig á að vera sem einstaklingur, hvað er skynsamlegt fyrir þig og hvað ekki. Það er ákveðin framlenging af sjálfum mér – ég hef farið eftir eigin leiðum í lífinu og það er bara allt í lagi, það gengur bara ágætlega hjá mér.“Þetta verður menningarviðburður þar sem plötusnúðar leika fyrir dansi.Hvernig kynntistu yngri hópnum? „Í fyrstu voru þetta strákar, þríburar, sem ég sá einhversstaðar niður í bæ. Ég vissi upphaflega ekki að þeir væru þríburar en síðar komst ég að því. Ég hafði bara samband vegna þess að ég fílaði stílinn þeirra – fatastílinn, útlitið þeirra, ég fílaði að þeir væru þríburar og að þeir væru að skeita. Síðan í framhaldinu kynntist ég hópnum þeirra. Að sjálfsögðu þurfti ég að setja mig í samband við foreldra þeirra og gera þetta ábyrgt – það er auðvitað pínu skrítið ef einhver 29 ára gaur fer að hanga með börnum í 10. bekk. Þetta var alveg ákveðið verkferli, það þurfti alveg að setja sjálfan mig á professional level til að geta gert þetta. Ég vildi líka skilja eitthvað eftir mig hjá þeim – ég vildi setja þau á stall sem mér finnst þau eiga skilið að vera á útaf því að t.d. hjólabrettamenning á Íslandi er alveg fáránleg – borgin er t.d. að byggja sparkvelli útum allt en svo eru það þessir krakkar sem verða útundan. Ég vildi peppa þessa krakka og sýna þeim að þau væru að gera eitthvað sem aðrir tækju eftir, að þau væru ógeðslega kúl og samþykkt. Ég held reyndar að þau vissu það áður en ég fór að vinna með þeim – það er mikil jákvæðni þarna og þetta er nettur hópur – en ég vildi setja minn punkt þarna með að mynda þau á minn hátt og setja fram sýningar með þeim í aðalhlutverki og á stað þar sem ég er að líta upp þeirra.“ Á sýningunni verða til sölu bækur og bolir í takmörkuðu upplagi. Það er hann Bobby Breiðholt sem sér um alla hönnun á sýningunni en Þórsteinn segir mikinn heiður að vinna með honum enda sér hann hönnuður á heimsmælikvarða. Um tónlistina sjá þeir Intr0beatz, Dj Dolphin, Krabba-Mane og Bleache úr Geisha Cartel. Juvenile Bliss opnar þann 9. september.
Mest lesið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira