Menning

Ferðalag um norræna náttúru

Magnús Guðmundsson skrifar
Ensemble Sirius ætla bæði að kenna að fólki að hlusta og spila fyrir það samtímatónlist um helgina.
Ensemble Sirius ætla bæði að kenna að fólki að hlusta og spila fyrir það samtímatónlist um helgina.
Um helgina gefst alveg einstakt tækifæri til þess að kynnast norrænni samtímatónlist á skemmtilegan hátt í Norræna húsinu. Ensemble Sirius er hópur fimm tónlistarkvenna frá Árósum sem spila á saxófón, tvöfaldan bassa, píanó, trompet og slagverk. Samstarf kvennanna er samnorrænt tónlistarverkefni sem þær kalla Ferðalag um norræna náttúru og gengur út á að kynna samtímatónlist frá sex norrænum löndum og stuðla að sterkri norræni tónlistarhefð.

Gunn Hernes verkefnisstjóri segir að hópurinn ætli að vera með tvo ókeypis viðburði um helgina þar sem áhorfendum verður boðið í ímyndað ferðalag víða um norðurslóðir. „Á laugardaginn (í dag) kl. 13 verður vinnustofa þar sem þær munu leitast við að opna huga fólks fyrir samtímatónlist sem er í huga margra tormelt og krefjandi. Fólk þarf ekkert að gera þarna annað en að koma og hlusta og læra um samtímatónlist því þó þetta sé vinnustofa þá sjá þær alveg um þetta,“ segir Gunn og hlær.

„Á sunnudeginum verða þær svo með tónleika kl. 15 þar sem þær flytja verk eftir Þuríði Jónsdóttur en hún tekur þátt í þessu skemmtilega verkefni fyrir hönd Íslands. Það er frítt inn á báða þessa skemmtilegu viðburði þannig að við vonumst eftir því að sjá sem flesta koma og í senn læra og njóta samtímatónlistar.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.