Enski boltinn

Klopp gerir engar breytingar á liðinu sem fékk á sig þrjú mörk á móti Watford

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þrír af þessum fjórum byrja leikinn eða þeir Sadio Mané, Jordan Henderson og Georginio Wijnaldum. James Milner er á bekknum.
Þrír af þessum fjórum byrja leikinn eða þeir Sadio Mané, Jordan Henderson og Georginio Wijnaldum. James Milner er á bekknum. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt, fyrir fyrri leik liðsins á móti Hoffenheim í umspili um laust sæti í Meistaradeildinni.

Klopp gerir engar breytingar á liðinu sem fékk á sig þrjú mörk á móti Watford í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi.

Klopp gat ekki valið Phillipe Coutinho sem er sagður vera að glíma við bakmeiðsli. Hann missti líka af Watford-leiknum.

Þetta verður 364. Evrópuleikur Liverpool í sögunni þar af leikur númer 182 í Evrópukeppni meistaraliða eða Meistaradeildinni.

Framherjaþrennan, Sadio Mané, Roberto Firmino og Mohamed Salah skoruðu allir í leiknum á móti Watford sem voru góðu fréttirnar en vandamálið var varnarleikurinn þar sem liðið fékk á sig þrjú ódýr mörk.



Byrjunarlið Liverpool í kvöld:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×