Landsliðskonur á skotskónum í Pepsi-deild kvenna í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2017 21:09 Hólmfríður Magnúsdóttir. Vísir/Eyþór
Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir tryggði KR dýrmæt þrjú stig í Vesturbænum í leik liðanna í Pepsi deild kvenna í kvöld en það gerði hún með því að skora bæði mörk KR-liðsins í 2-1 sigri á FH. Breiðablik vann Fylki 2-0 á sama tíma. Hólmafríður Magnúsdóttir skoraði fyrra mark sitt á 43. mínútu eftir aukaspyrnu frá Katrínu Ómarsdóttur en það seinna skoraði Hólmfríður síðan á 72. mínútu. Megan Dunnigan minnkaði muninn fyrir FH sex mínútum eftir seinna mark Hólmfríðar en nær komst Hafnarfjarðaliðið ekki að fá eitthvað út úr þessum leik. KR-konur eru búnar að endurheimta Katrínu Ómarsdóttur og tefla nú fram fullskipuðu liði. Það hefur skilað þeim sex stigum af sex mögulegum í fyrstu tveimur leikjum liðsins eftir EM-fríið. Mörk frá landsliðskonunum Rakel Hönnudóttur og Ingibjörgu Sigurðardóttur með sjö mínútna millibili í fyrri hálfleik tryggði Blikum 2-0 sigur á Fylki í Árbænum. Fylkisliðið náði óvæntu jafntefli á móti toppliði Þór/KA á útivelli í fyrsta leik eftir EM-frí og í fyrsta leik sínum undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar. Liðið hefur ekki náð að fylgja þessu eftir og hefur nú tapað tveimur heimaleikjum í röð. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik lokið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Leik lokið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við stóðum af okkur storminn“ Leik lokið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Viðar Örn að glíma við meiðsli Sjá meira