Derrick Rose spilar með Cleveland Cavaliers í NBA í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2017 20:30 Derrick Rose í leik á móti Cleveland og Lebron James. Vísir/Getty
Bandaríski leikstjórnandinn Derrick Rose hefur náð samkomulagi um að spila með Cleveland Cavaliers 2017-18 tímabilið. Rose gerði eins árs samning og fær fyrir hann 2,1 milljón dollara. Hinn meiðslahrjáði bakvörður fær því tækifæri til að sína að hann er ekki búinn að vera og um leið að hjálpa Cleveland að berjast áfram meðal þeirra bestu í deildinni. Cleveland gekk fljótt í málið eftir að fréttist af því að Kyrie Irving vildi losna frá félaginu. LeBron James fær nú öflugan leikstjórnanda til sín sem ætti að minnka eitthvað höggið við það að missa Kyrie. Rose var líka í viðræðum við Los Angeles Lakers, Milwaukee Bucks og Los Angeles Clippers. Hann valdi hinsvegar Cleveland og LeBron bauð hann velkominn á Twitter. Golden State Warriors fékk til sín fyrrum besta leikmann NBA-deildarinnar í fyrra þegar Kevin Durant kom til liðsins. Cleveland fer svipaða leið en á meðan Durant er enn í hópi bestu manna þá hefur ferill Rose hinsvegar verið á hraðri niðurleið. Derrick Rose er líka fyrrum besti leikmaður NBA-deildarinnar en hann átti frábært tímabil með Chicago Bulls 2010-11. Rose meiddist hinsvegar illa í úrslitakeppninni það tímabil og hefur síðan þá verið meira eða minna meiddur. Derrick Rose verður 29 ára gamall í byrjun október en hann var með 18,0 stig og 4,4 stoðsendingar að meðaltali með New York Knicks á síðasta tímabili. Þegar hann var kosinn bestur tímabilið 2010-11 þá voru meðaltöl hans aftur á móti 25,0 stig og 7,7 stoðsendingar í leik.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira