Skoðun

Staðreyndir fyrir Hildi Knútsdóttur

Heiðar Guðjónsson skrifar

Hildur Knútsdóttir sendir mér tóninn í Fréttablaðinu 6. júlí. Hún segir mig, samstarfsmenn mína, ásamt norsku og kínversku ríkisolíufélögunum skorta siðferði í græðgi okkar. Hér eru nokkrar staðreyndir sem sýna villu Hildar:



1) Lífskjör almennings hafa aldrei batnað jafn hratt og eftir að olíuöldin hófst eftir miðja 19. öld. Ísland er skýrasta dæmið í þeim efnum. Vegna samgöngubyltingar alfarið í krafti olíu hafa lífsskilyrði þar færst frá að vera ein lökustu í Evrópu í fremstu röð. Notkun Íslendinga á olíu mun aukast með tíðari flug- og skipaferðum. Þeir flutningar eru hagkvæmir, stytta núverandi leiðir og minnka þannig mengun á heildina litið.



2) Olía og gas hafa komið í stað brennslu á viði, kolum, taði og öðru og þannig dregið stórkostlega úr mengun, slysum og sjúkdómum.



3) Parísarsáttmálinn segir ekki að láta beri olíu- og gaslindir óhreyfðar. Hann hvetur hins vegar til þess að mest mengandi kolefnin (lesist: kol) skuli ekki unnin heldur þau skaðminni (olía og gas).



4) Olíu- og gasnotkun hefur tryggt afskekktum svæðum samgöngur, rafmagn og aðra innviði og stórbætt lífskjör almennings alls staðar.



5) Auðveldara er að bregðast við breytingum á veðri en að reyna að stjórna því. Lífskjarabatinn sem olíuvinnsla hefur fært heiminum eykur líkurnar á uppgötvun nýrra orkugjafa.



Stjórnmálaflokkur Hildar Knútsdóttur, VG, veitti Eykon, Petoro og CNOOC vinnslu- og leitarleyfi á Drekasvæðinu. Fyrir því voru skýr rök enda vandfundinn öflugri hópur. Norska ríkisolíufélagið er reynslumesti leitar- og vinnsluaðili í Atlants- og Barentshafi og CNOOC einn sá reynslumesti og stærsti í Norðursjó. Bæði fyrirtækin eru efnahagslega í hópi þeirra burðugustu í heimi.



Hvergi í heiminum hefur reynst farsælla að vinna orku en í norðri. Olíuvinnsla við Ísland verður ávallt öruggari en þar sem öryggis- og eftirlitsleysi ríkir. Íslendingar nota meiri olíu miðað við höfðatölu en Bandaríkjamenn. Olíuvinnsla hér við land yki sjálfbærni Íslendinga til mikilla muna. Öll rök, siðferðileg, umhverfisleg og efnahagsleg mæla með að olía og gas verði unnið við Ísland.

Höfundur er fjárfestir.


Tengdar fréttir

„Olíufundur gæti gjörbreytt Íslandi“

Í viðtali sem birtist í Viðskiptablaðinu þann 1. júlí síðastliðinn segir Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, frá áformum Eykon Energy um að bora ekki eina heldur þrjár borholur á Drekasvæðinu til að freista þess að dæla upp olíu. Hann fullyrðir að ef olía finnist muni ríkið græða milljarða og enginn kostnaður muni falla á ríkissjóð. Við þetta er ýmislegt að athuga.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×