Cloé með tvennu í fimmta deildarsigri ÍBV í röð | Grindavík fjarlægist fallsætin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júlí 2017 15:54 Eyjakonur eru óstöðvandi þessa dagana. vísir/eyþór
Sigurganga ÍBV í Pepsi-deild kvenna heldur áfram en í dag vann liðið 3-1 sigur á Val á Hásteinsvelli. Þetta var fimmti deildarsigur ÍBV í röð og sá sjöundi í deild og bikar. Með sigrinum í dag komust Eyjakonur upp í 3. sæti deildarinnar. Valskonur eru hins vegar áfram í 5. sætinu. Valur komst yfir á 14. mínútu þegar Sóley Guðmundsdóttir, fyrirliði ÍBV, skoraði sjálfsmark. Sex mínútum síðar skoraði Laufey Björnsdóttir annað sjálfsmark og staðan því orðin 1-1. Á 57. mínútu var komið að Cloé Lacasse. Hún slapp þá í gegnum vörn Vals eftir sendingu Sóleyjar og skoraði framhjá Söndru Sigurðardóttur í markinu. Og aðeins tveimur mínútum síðar skoraði hún sitt annað mark eftir mikinn sprett upp vinstri kantinn. Cloé hefur verið óstöðvandi að undanförnu og skorað 10 mörk í síðustu sex leikjum ÍBV í deild og bikar. Grindavík er komið langleiðina með að bjarga sér frá falli eftir 1-2 útisigur á botnliði Hauka. Eftir tvo sigra í röð er Grindavík komið með 12 stig og er nú átta stigum frá fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir. Haukar eru hins vegar áfram á botninum með sitt eina stig. Marjani Hing-Glover kom Haukum yfir á 13. mínútu en Rilany Aguiar Da Silva jafnaði metin á markamínútunni, þeirri fertugustuogþriðju. Það var svo Berglind Ósk Kristjánsdóttir sem skoraði sigurmark Grindvíkinga á 58. mínútu. Hennar fyrsta mark í sumar og það var heldur betur mikilvægt. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Agla María með þrennu í stórsigri Stjörnunnar Agla María Albertsdóttir, yngsti leikmaðurinn í íslenska EM-hópnum, skoraði þrennu þegar Stjarnan rúllaði yfir KR, 1-5, í fyrsta leik 11. umferðar Pepsi-deildar kvenna í dag. 1. júlí 2017 14:02 Mest lesið „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti David Raya bjargaði stigi á Old Trafford Enski boltinn Laglegt mark Alberts gegn Napoli sem vildi láta reka hann af velli Fótbolti Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Handbolti Glódís úr leik í fyrsta sinn á ferlinum Fótbolti Svindlaði á öllum lyfjaprófum Sport Cucurella sendi Chelsea upp fyrir meistarana Enski boltinn „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Sjá meira
Agla María með þrennu í stórsigri Stjörnunnar Agla María Albertsdóttir, yngsti leikmaðurinn í íslenska EM-hópnum, skoraði þrennu þegar Stjarnan rúllaði yfir KR, 1-5, í fyrsta leik 11. umferðar Pepsi-deildar kvenna í dag. 1. júlí 2017 14:02