Þjálfaralausir Frammarar upp í 3. sætið | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2017 21:12 Fram er komið upp í 3. sæti Inkasso-deildarinnar en staða Gróttu er erfið. vísir/ernir
Þjálfaralaust lið Fram vann 1-0 sigur á Gróttu í 8. umferð Inkasso-deildarinnar í fótbolta í kvöld.Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Laugardalsvellinum í kvöld og tók myndirnar sem má sjá hér að neðan. Mikið hefur gengið á hjá Fram að undanförnu en á mánudaginn var Ásmundi Arnarssyni sagt upp sem þjálfara liðsins. Eftirmaður hans er enn ófundinn. Staðan var markalaus í hálfleik en á 52. mínútu skallaði Dino Gavric aukaspyrnu Simons Smidt í netið og kom Fram yfir. Þrátt fyrir ágætis færi beggja liða urðu mörkin ekki fleiri og Fram fagnaði sigri og þremur stigum. Fram er í 3. sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á eftir Fylki og Þrótti R. Grótta, sem hefur aðeins unnið einn leik í sumar, er í ellefta og næstneðsta sætinu með fimm stig. Eftir fjóra tapleiki í röð vann HK 2-0 sigur á ÍR í Kórnum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem HK heldur hreinu í sumar. Heimamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum í kvöld og komust yfir á 16. mínútu með marki Ásgeirs Marteinssonar. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka bætti Bjarni Gunnarsson öðru marki HK við og lokatölur því 2-0. Á lokamínútu leiksins fékk ÍR-ingurinn Styrmir Erlendsson að líta rauða spjaldið. HK er í 8. sæti deildarinnar með níu stig en ÍR er tveimur sætum neðar með sjö stig. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.vísir/ernir
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Ásmundur hættur hjá Fram Ásmundur Arnarsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram. 19. júní 2017 17:50 Mest lesið Hópurinn gegn Grikkjum: Nítján ára nýliði í markinu Handbolti Ung skíðaskotfimikona lömuð eftir slys á æfingu Sport Svona var blaðamannafundur Snorra Handbolti Jón Otti körfuboltadómari fallinn frá Körfubolti Dóttirin líkamssmánuð: „Þetta eru meiri trúðarnir“ Sport Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Enski boltinn Littler var reiður: „Tap Man. Utd kveikti á mér“ Sport Bjóða skaðabætur vegna þess að hitt liðið var án Messi Fótbolti Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Handbolti Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Sjá meira
Ásmundur hættur hjá Fram Ásmundur Arnarsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram. 19. júní 2017 17:50