Golden State átti fyrsta höggið | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júní 2017 07:15 Kevin Durant skoraði 38 stig og var stigahæstur á vellinum. vísir/getty
Golden State Warriors tók forystuna gegn Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar með 113-91 sigri í fyrsta leik liðanna í nótt. Golden State hefur nú unnið alla 13 leiki sína í úrslitakeppninni. Golden State hélt Cleveland í aðeins 34,9% skotnýtingu í leiknum og þá tapaði Cleveland boltanum 20 sinnum en Golden State einungis fjórum sinnum. Kevin Durant átti frábæran leik í liði Golden State. Hann skoraði 38 stig, tók átta fráköst og gaf átta stoðsendingar. Alls gáfu leikmenn Golden State 31 stoðsendingu í leiknum en leikmenn Cleveland aðeins 15. Stephen Curry var einnig öflugur með 28 stig og 10 stoðsendingar. Klay Thompson og Draymond Green fundu sig hins vegar ekki í sókninni og hittu aðeins úr samtals sex af þeim 28 skotum sem þeir tóku í leiknum. LeBron James stóð upp úr í liði Cleveland með 28 stig, 15 fráköst og átta stoðsendingar. Kyrie Irving skoraði 24 stig og Kevin Love var með 15 stig og 21 frákast. Annar leikur liðanna fer fram á sunnudaginn.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira