Skoðun

Opið bréf til Dags B. Eggertssonar

Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kæri borgarstjóri. 

Ég leyfi mér hér í upphafi að vísa til þess að þú ert fjögurra barna faðir og ættir því að hafa fullan skilning á mikilvægi þess að reykvísk ungmenni hafi eitthvað uppbyggilegt á milli handanna og fyrir stafni þegar sumarleyfi skólanna hefjast.

Í dag lýkur skólahaldi grunnskólanna og nemendur 8. bekkjar skrá sig til vinnu hjá sínum vinnuskólum, allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, nema í Reykjavík þar sem þú ert borgarstjóri. Þar er þessi kostur ekki í boði fyrir árganginn, fremur en endranær, frá árinu 2011.

Á því herrans ári var þrengt verulega að Vinnuskóla Reykjavíkur í hagræðingarskyni, skólahald lagt af hjá nemendum 8. bekkjar og það stytt umtalsvert hjá nemendum níunda og tíunda bekkjar. Á þessum þrengingum hefur engin breyting orðið til batnaðar í sex ár. Það er bagalegt ábyrgðarleysi um mjög mikilvægt málefni.

Vandaðir vinnuskólar eins og Reykjavíkurborg hefur haft yfir að ráða, hafa alla burði til að sinna mikilvægu forvarnarstarfi fyrir viðkvæman aldurshóp, veita ungmennum létta vinnu við garðyrkju og umhirðu, kenna þeim að bretta upp ermar og taka til höndum, tryggja þeim útiveru og hreyfingu og styrkja jafnframt umhverfislæsi þeirra: - vitund þeirra, skilning og þekkingu, á borginni, borgarlífinu, borgarlandinu, skipulagi þess, vistkerfi, trjátegundum og öðrum gróðri. Það er því nokkuð ljóst að uppbyggileg sumarvinna mun skila sér margfaldlega í auknum forvörnum, hefur uppeldislegt gildi og er þroskandi fyrir unga borgarbúa.

Ábyrgir foreldrar í Reykjavík hafa því í vaxandi mæli áhyggjur að því að börn þeirra hafi að litlu að hverfa í sumarfríi sínu. En við þetta bætist svo grátt ofan á svart, sem í fljótu bragði virðist vera allt annar handleggur, en er þó bara hin hliðin á sömu myntinni: Sífellt fleiri borgarbúum finnst borgin sóðaleg og öll í óhirðu, ekki síst á fögrum sumardögum, þegar svo sjaldan er slegið og illa hirtir hennar grænu engjareitir að þeir líkjast helst óhirtum illgresismelum. Þessi staðreynd gefur þeirri kenningu óneitanlega undir fótinn, hvort Vinnuskóla borgarinnar veitti nokkuð af þeim liðstyrk sem felst í árgangi 8. bekkjar.

Ég hef nú verið að tala fyrir þessari tillögu minni í borgarstjórn, um eflingu Vinnuskólans, á hverju vori um nokkurra ára skeið, án nokkurs árangurs. En það hvarflar að mér, Dagur, hvort þú gætir ekki slegið tvær flugur í einu höggi, ef þú rækir nú af þér slyðruorðið, fjölgaðir í Vinnuskólanum og færir að sinna heyönnum eins og gert er á sómasamlegum bæjum. Þá gæturðu kannski talið borgarbúum trú um það að þér þyki nokkuð um hvoru tveggja, unga fólkið í borginni og borgina sjálfa.

Ég er viss um að þetta ætti ekki að tefja þig svo mjög frá því að þrengja götur og þétta byggð.

Virðingarfyllst,

Marta Guðjónsdóttir,

borgarfulltrúi.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×