Páfinn fer með Trump í skoðunarferð um Péturskirkjuna Atli Ísleifsson skrifar 23. maí 2017 22:52 Bandarísku forsetahjónin komu til Rómar síðdegis í dag. Vísir/afp
Donald Trump Bandaríkjaforseti mun funda með Frans páfa í Vatíkaninu á morgun, miðvikudag. Að fundi loknum mun páfi svo fara með Trump í skoðunarferð um Péturskirkjuna og Sixtínsku kapelluna. Forsetavélin Air Force One lenti á Leonardo Da Vinci flugvelli í Róm síðdegis í dag en þetta er fyrsta opinbera heimsókn Trump til Evrópu frá því að hann tók við embætti Bandaríkjaforseta í janúar. Forsetinn kom til Rómar eftir heimsókn sína til Sádi-Arabíu, Ísrael og palestísku heimastjórnarsvæðanna. Trump og Frans páfi munu funda í fyrri partinn á morgun og er búist við að málefni flóttafólks, loftslagsmál og kapitalisminn verði þar til umræðu. Búist er við að forsetafrúin Melania Trump og dóttir forsetans, Ivanka Trump , komi til með að taka þátt í fundinum með páfa. Að því loknu mun Trump funda með ítalska forsætisráðherranum Paolo Gentiloni og forsetanum Sergio Mattarella í forsetahöllinni í Róm. Síðdegis mun Trump svo fljúga til Brussel þar sem hann mun eiga fund með leiðtogum Evrópusambandsins og NATO áður en hann snýr aftur til Ítalíu á fimmtudag þar sem hann mun verða viðstaddur leiðtogafund G7-ríkjanna á Sikiley föstudag og laugardag.
Donald Trump Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Fleiri fréttir Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Sjá meira